Muninn

Árgangur

Muninn - 01.04.1965, Síða 32

Muninn - 01.04.1965, Síða 32
Fyrir jólin tóku tvær sveitir frá BMA þátt í keppni I. flokks Bridgefélags Akureyrar. Þar spiluðu alls tíu sveitir og fluttust tvær efstu upp í meistaraflokk. Sveit Jóns Hilmars Jóns- sonar háði harða baráttu um annað sætið, en varð að lúta í lægra haldi vegna óvæntra úr- slita í síðustu umferð. í sveitinni voru auk Jóns þeir Jón Arason, Árni Konráðsson, Hjálmar Freysteinsson, Sigurður Hafliðason og Bjarni G. Sveinsson. Sveit Sturlu Þórðarsonar hafnaði í sjöunda sæti. 23. janúar háðu bridgemenn frá MA keppni við starfsmenn SÍS-verksmiðjanna. Keppt var á sjö borðum, og sigraði MA með 28 stigum gegn 14. Bridgefélagið gekkst fyrir einmenningskeppni 30. janúar, og er það í fyrsta sinn, sem slíkt hefur verið reynt. Þátttakendur voru sextán, og var keppnin hörð og spennandi. Jón Arason varð hlutskarpastur, og hlaut hann 116 stig. í öðru sæti var Hörður Björnsson með 108 stig. Um miðjan febrúar fengum við ágæta heim- sókn. Var það sex manna hópur bridgespilara úr MR. Urslit urðu þau, að Reynir Kristinsson og Georg Ólafsson, MR, sigruðu, hlutu 62 stig. í öðru sæti voru Sigurður Hafliðason og Bjarni G. Sveinsson, og Jón Arason og Jón Hilmar Jónsson. Daginn eftir var svo háð sveitakeppni milli MA og MR. Sigruðu sunnanmenn með nokkrum yfirburðum. Heimsókn þessi var hin ánægjulegasta, og er það von okkar, að við get- um endurgoldið hana næsta vetur. Hin árlega keppni milli KEA og MA fór fram að Hótel KEA 21. febrúar, og var keppt á sjö borðum. Ekki sóttu menntlingar gull í greipar kaupfélagsmanna fremur en áður. Sigruðu hin- ir síðarnefndu með 27 stigum gegn 14. Sveitakeppni BMA var háð í febrúar og marz með þátttöku fjögurra sveita. Urslitaleikurinn fór fram laugardaginn 20. marz. Áttust þar við sveit Jóns Hilmars Jónssonar, sigurvegarinn frá í fyrra, og sveit Harðar Björnssonar. í hálfleik hafði sveit Harðar 12 stig fram yfir, og óx bilið enn í síðari hálfleik. Leiknum lauk með sigri Harðar, 93:64. í sveitinni eru auk Harðar, þeir Garðar Guðmundsson, Sigurður Hafliðason, Bjarni G. Sveinsson og Leifur Ragnarsson. Voru þeir félagar vel að sigrinum komnir. Kennarar og nemendur leiddu saman hesta sína í bridgekeppni 28. marz. Tvær sveitir voru frá hvorum aðila. Á fyrsta borði sigruðu nem- endur eftir harða keppni með 17 stiga mun (6:0), en á öðru borði sigruðu kennarar með 80 stiga mun (6:0). H. J. H. Skákþáttur Aðalfundur Skákfélags MA var haldinn 12. okt. Fundarsókn var afleit, og var meirihluti fund- armanna kjörinn í stjórn. Stjórnin er nú þannig skipuð: Formaður Ell- ert Ólafsson VI. sb. Ritari Gylfi Þórðarson VI. sb. Gjaldkeri Jón Toi'fason III. b. Áhaldavörður Skúli Torfason III. e. Reynt hefur verið að haga starfsemi félagsins þannig, að sem flestir sæu sér fært að taka þátt í mótum félagsins. Hafa því alloft verið haldin hraðskákmót en þátttaka verið misjöfn. Starfsemi félagsins hófst með hraðskákmóti, sem haldið var 18. okt. Keppendur voru 12, þar af 2 gestir. Efstir urðu: Haraldur Ólafsson (gest- ur) 8V2 vinning, en næstir urðu Júlíus Bogason (gestur), Kristján Eiríksson og Gunnar Birgis- son með 7 vinninga. Hraðskákmót MA 1964 var haldið 13. des. Sigurvegari í mótinu varð Jón Torfason með 9 vinninga af 10 mögulegum. í 2. til 4. sæti urðu Ellert Ólafsson, Kristján Eiríksson og Gunnar Skarphéðinsson með 5 vinninga. Skákþing MA fór fram í desember og voru keppendur 7. Þátttaka í þessu móti hefur farið síversnandi undanfarin ár og er ekki gott að spá um ástæðuna. Meira má, að þetta stafi af því, að nú taki menn aðeins þátt í skákmótum af metnaðarástæðum, en ekki vegna ánægjunn- ar, er illt ef svo er. Urslit urðu þessi: Efstir urðu Ellert Ólafsson, Jón Torfason og 140 MUNINN

x

Muninn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.