Muninn - 01.05.1997, Síða 17
ÞYNGDARLÖGMÁLIÐ 1933 HUGSUÐURINN 1952
Lauslegur samanburður á þyngd skólanema.
Af 170 skrásettum nemendum skólans hafa 159 verið tvívegis
vegnir af skólalækni, að venju. Nemendur voru vegnir í síðara
sinn 2 mánuðum síðar en vant er. Þeir 11, sem á vantar, hafa
af einhverjum orsökum verið fjarverandi, annaðhvort í fyrra
eða síðara skiptið. Af þessum 159 hafa 139, eða 87,73% Þyngzt,
1, eða 0,62% hefur staðið í stað, en 19, eða 11,65%, hafa létzt.
Meðalþungi einstakra bekkja óx sem hér segir:
VI. bekkur
V. bekkur
IV. bekkur
Ill.bekkur A
Ill.bekkur B
II. bekkurA
II. bekkur B
I. bekkur
-0,75%
+4,81%
*5,25%
+6,16%
+5.33%
+5.53?°
+3,29%
+6,309%
Sést af þessum tölum að VI. bekkur er einasti bekkurinn, sem
hefir negatífa þyngdaraukningu, en 1. bekkur hefur þyngst
hlutfallslega mest. í III. bekk B þyngdust allir.
Hjá heimavistarnemum óx meðalþunginn um 5,29% en um
3,98 hjá bæjarnemum.
Meðalþungi kvenna óx um 2,28% en karla um 5,50%.
Þungi allra veginna skólanema nemur 10642,3 kg.
Haukur Helgason.
TÓBAKSPISTILL 1955
Fyrir nokkru var stofnað hér í skólanum félag, sem hefur að
markmiði að efla hina fornu list, neftóbaksítöku. Nefnist
félagið „Die Snubftabak Geschellschaft". Félagið hafði í fyrstu
talsverð áhrif innan skólans, og þau svo mikil, að jafnvel
ungar blómarósir og háttvirtir lærifeður tóku í nefið, bæði
opinberlega og í laumi.
En nú er svo komið, að gengi neftóbaksinna fer ört
minnkandi, og er ekki annað sjáanlegt, en að þessi forni
þjóðarsiður sé að deyja út með öllu hér í skóla.
Tóbaksmenningin mun hafa staðið hæst í þriðja bekk.
Viljum vér til gamans birta félagssöng neftóbaksmanna í
þriðja bekk, þann er þeir syngja oftlega.
Hljóðar hann þannig:
Þriðja bekkjar bestu synir,
bátnum mun nú ýtt frá skör.
Neytum tóbaks, traustu vinir,
tökum það í nef og vör.
Ath. Vísurnar má syngja undir tveim lögum, sem bæði eru vel
kunn hér í skólanum.
í hundrað þúsund ár
hef ég legið á meltunni
og hugsað.
Og nú veit ég
að betra er
að liggja á bakinu
en maganum.
Ari Jósefsson.
EX í ÖÐRU 1984
Kveinstafir stærðfræðinnar
ritaðir á blöð,
ofsækja mig heim.
Algebran þokar sér upp blýantinn,
nagar alla svigana upp að öxlum
og seytlast svo niður í dæmið sitt.
Handskjálftahlutfall mitt er x í mínus
Ég sturlast.
Geometrían sneiðir af mér allar línur
og slær mér upp í horn.
Ég er samsíða. Hjálp!
Stærðfræðin stendur sigri hrósandi;
tveir í einkunn.
Gula bókin liggur opin
og hlær.
P. Örn '84
AUGLÝSINGAR FRÁ 1964
VERZLID í SÉRVERZLUN!
BÆJARINS MESTA ÚRVAL AF TÓBAKSVÖRUM
REVKJARI'iPLR, margar ger»ir
Einnig:
PlPUSTATÍF
PÍPUTROÐARAR
PÍPUHREINSARAR
REYKTÓBAKSVESKI
KVEIKJARAR, beniin og gaj
ÖSKUBAKKAR
SÍGARETTUHULSTUR uun
um pakkan. Fyrir dömur og herra
SÆLGÆTI, SVALADRYKKIR
og margt margt fleira
OPIÐ ÖLL
KVÖLD
TIL KL. 10
Tóbaksbúðin
Brckkug. 5, sími 1-28-20
NEMENDUR!
HVÍLIÐ YKKUR Á LESTRINUM 0G SETJIÐ ÞÁ SAMAN
PLASTMODEL
MIKIÐ ÚRVAL
Tómstundaverzlunin
STRANDGÖTU 17 og
GEISLAGÖTU
M U N I N N
1 9 9 7 17