Muninn - 01.05.1997, Page 60
ANDRÚ
LDU STRÍÐI
mynd: G.S.
Stjómmálaáhugi i bernsku
Undirritaður var nemandi í Menntaskólanum á Akureyri á
árunum 1950-1955 og á þaðan margar minningar, flestar
ljúfar. Þá var enn starfrækt við skólann landsprófsdeild í
tveimur bekkjum, einskonar leifar af gömlu
gagnfræðadeildinni. Bekkir í skólanum voru því sex talsins
og hófst menntadeild i 3. bekk. Þegar ég kom til Akureyrar
með tvíburabróður mínum Gunnari til að þreyta
utanskólapróf upp úr 1. bekk hafði ég að baki tæplega vetur
samanlagt í skóla, allt annað var heimanám á Hallormsstað.
Ég kom því óþreyttur af skólaveru norður og spenntur að fá
að glíma við fræðin.
Stjórnmálaáhugi hafði fylgt mér frá bernskuárum, örvaður
af átökum heimsstyrjaldarinnar og lestri bóka og blaða um
samtímamál. Viðhorf mín til 15 ára aldurs drógu dám af
foreldrahúsum, þar sem móðirin sá fyrir kristilegu uppeldi og
faðirinn og eldri systkini studdu Framsóknarflokkinn. Tólf
HJÖRLEIFUR GUTTORMSSON
ára gamall gekk ég í ungmennafélag sveitarinnar og í Félag
ungra framsóknarmanna í Suður-Múlasýslu með undanþágu,
en aldursmarkið var 14 ár! Ég hlýddi á útvarpsumræður frá
Alþingi af svipuðum áhuga og á útvarpsleikrit. Eftirminnileg
var umræðan á Alþingi að kvöldi 29. mars 1949 um inngöngu
íslands í NATÓ, sem ég fylgdist með til loka. Sjálfur var ég
mjög efins um það skref en lét huggast af svardögum
Eysteins Jónssonar og Framsóknarforystunnar um að hér á
landi skyldi aldrei vera her á friðartímum.
Skiliö við Framsókn
Þessir svardagar entust ekki lengi. Aldrei gleymi ég því
áfalli sem það var að heyra af því fréttir þar sem ég sat yfir
lestri undir landspróf að bandarískur her hefði komið til
landsins þá um nóttina með samþykki „lýðræðisflokkanna",
Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Alþýðuflokks. Alþingi
var ekki kvatt saman og herstöðvarsamningurinn var ekki
60 MUNINN 1997