Muninn

Volume

Muninn - 01.05.1997, Page 61

Muninn - 01.05.1997, Page 61
samþykktur þar fyrr en veturinn eftir. Traust mitt á Framsóknarflokknum gufaði upp þennan maídag og haustið eftir fór á sömu Ieið með barnatrúna án sýnilegs tilefnis. Ég stóð hugmyndalega á berangri, vegarnesti æskuheimilisins þrotið og við tók leit út í óvissuna. Sextánda aldursárið fór í endurskoðun á sjálfum mér og tilverunni. Ég stældi við þá skólafélaga mina fram og aftur sem höfðu gaman af rökræðum en fast land var hvergi undir fótum. Stuttu eftir skólabyrjun í fjórða bekk var mér boðið að koma á svokallaðan leshring hjá Æskulýðsfylkingunni á Akureyri, en svo hét ungliðahreyfing sósíalista. Ég þáði það og upp frá því fóru mörg sunnudagssíðdegi í pólitíska fræðslu- og umræðufundi niðri i húsnæði Sósíalistaflokksins í Hafnarstræti. Ásamt nokkrum skólafélögum slóst ég með i kröfugöngu verkalýðsfélaganna i. maí 1953 á Akureyri, þá kominn inn í raðir þeirrar hreyfingar sem ég hef starfað með síðan. Dauðhreinsuð kennarastofa Það var mikil pólitísk spenna hér á landi eins og úti í heimi þessi árin. Kalda stríðið var komið langt niður fyrir frostmark og gustinn frá því lagði inn á vinnustaði og stofnanir. Flokksskrifstofur „lýðræðisflokkanna" miðluðu fólki í vinnu suður á Keflavíkurvöli og þá var jafngott að verða ekki uppvís að röngu hugarfari! Þetta andrúmsloft grúfði einnig yfir framhaldsskólum landsins og við ráðningar í opinbera stöður. Kennarastofan í M.A. mátti heita dauðhreinsuð af fólki með vinstri sinnaðar stjórnmálaskoðanir, þar til Jón Hafsteinn Jónsson réðist að skólanum veturinn 1953, nýbakaður verðlaunahafi í stærðfræði frá Kaupmannahöfn. Líklega var enginn sem gat keppt við hann um stöðuna, en hafi nemendur vænst afslappaðrar kennslu frá hans hendi urðu þeir hinir sömu fyrir vonbrigðum. Skólameistarí gætti sálarheillar Skólameistari var á þessum árum Þórarinn Björnsson, sem tekið hafði við af Sigurði Guðmundssyni árið 1947. Þórainn var afar vökull stjórnandi, vakinn og sofinn yfir heill skólans og nemenda eins og hann vissi réttast. Hann hafði tekið ljúfmannlega á móti okkur bræðrum og fylgdist með mér sem öðrum í heimavistinni. Þegar það nú spurðist á kennarastofu að drengurinn frá Hallormsstað væri kominn í slagtog við þá rauðu kallaði Þórarinn mig á beinið rétt fyrir jólin. Þar áttum við samtal líklega á þriðju klukkustund þar sem meistari lýsti miklum áhyggjum yfir sálarheilli minni ef ég léti ánetjast sósíalistum. Ekki lét ég sannfærast af fortölum hans þá eða síðar, en samtöl af svipuðum toga átti Þórarinn við mig öðru hvoru veturna fram til stúdentprófs, m.a. af ástæðum sem nú skal greina. Atkvæði greidd með fótunum Málfundafélagið Huginn var allvel lifandi á þessum árum og beitti sér fyrir mörgum umræðufundum á vetri. Oft voru þar á dagskrá pólitísk mál, sem t.d. snerust um hersetuna. Tillögur voru fluttar og greidd atkvæði um þær, stundum með fótunum á þann hátt að fólk gekk út sitt hvorum megin á Sal og var talið við dyrnar svo ekkert færi milli mála. Á sama hátt var hart barist um formennsku í félaginu. Komið var að máli við mig um framboð og fór þar fyrir Lárus Guðmundsson, fráfarandi formaður Hugins og síðar prestur. Á móti var stillt Heimi Hannessyni síðar lögfræðingi. Atkvæði féllu þannig að ég náði kjöri með 97 atkvæðum, fáeinum atkvæðum yfir Heimi. Formennska í málfundafélaginu var mér talsverður skóli og ég reyndi að sinna því verkefni eftir getu. Efnt var til bókmenntakynninga auk málfundanna og bryddað upp á fleiru til tilbreytingar. Hefð var fyrir að skólameistari sæti í stjórn málfundafélagsins. Af þeim sökum urðu kynni okkar Þórarins meiri en ella. Eftir stjórnarfundi spjölluðum við oft saman og þá átti hann það til að hrakyrða forystumenn sósíalista. Hann virtist jafnframt trúa því að sumir róttækir nemendur sætu á svikráðum við sig og skólann. Að þessu leyti var hann haldinn móðursýki sem segir sitt um andrúmsloftið á þessum árum. Mér þótti hins vegar nógu vænt um Þórarin til að erfa þetta ekki við hann. Að þjóna betur flokknum Menntaskólinn á Akureyri var góður skóli á þessum árum eins og löngum fyrr og síðar. Kennaraliðið var undantekningarlítið traust og studdist við gamlar hefðir. Þórarinn skólameistari var kennari af lífi og sál og kynntust allir þeirri hlið á honum sem á annað borð náðu til stúdentprófs. Einnig í því starfi var viðkvæmnin honum styrkur gagnvart flestum. [ sjötta bekk leigði ég mér herbergi úti i bæ hjá öndvegiskonum að Oddagötu 13. Þórarinn sagði bekkjarfélögum mínum tiðindin þegar þeir heilsuðu upp á hann um haustið: „Hjörleifur er fluttur út í bæ - til að geta þjónaó betur flokknum!" Þetta voru lífleg og góð ár þrátt fyrir kulda og harðar andstæður í stjórnmálum. Tvívegis hef ég heimsótt minn gamla skóla til að taka þar þátt í málfundum, nú síðast 5. mars. Ramminn er annar en forðum en umræðuefnin þrýtur ekki. Má ég biðja Munin fyrir bestu kveðjur í skólann, lika á kennarastofuna, frá óforbetranlegum róttæklingi að austan. Hjörleifur Guttormsson MUNINN 1997 6l
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Muninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.