Muninn - 01.05.1997, Síða 90
c
¥ ¥ reinarhöfundur spyr: „Ert þú smiður þinnar eigin
gæfu?" Ef svo er, hvers vegna stöndum við þá frammi
fyrir því að erfingjar landsins heyja baráttu á vígvelli þar sem
engin miskunn er sýnd? Við erum ung og við erum óreynd, við
erum auðveldar bráðir vopnaðra óvina sem birtast í margs
konar formi. En það er ekki þar með sagt að við séum einungis
leiksoppar örlaga okkar og aðstæðna. Ég hef bara ætíð ætlað
mér að breyta örlítið áherslu þessa forna málsháttar enda
uppgötvað eftir vangaveltur um ýmis gæði lífsins, að gæfa er
ekki keypt né smiðuð af höndum mannsins. Sumum er hún
vandfundin en öðrum er hún auðfundin. Sumir finna hana en
ná ekki að fóta sig í brattri fjallshlíðinni aðrir höndla hana
eftir örlitið skrik. Einhverjum kann að finnast þetta nokkuð
einfaldar hugmyndir um svo stórt hugtak enda verður það
ekki brotið hér til mergjar, heldur er það einungis formáli að
þvi efni sem hefur verið mér hugleikið undanfarna daga. Ég
var nefninlega þeirrar gæfu aðnjótandi að vera boðið á
ráðstefnu um þau mál sem hafa verið ofarlega í huga
þjóðarinnar undanfarið, áfengis- og vímuefnanotkun barna og
unglinga. Þessi mál hafa vissulega átt sinn stað í huga mér en
ef til vill ekki efst. Því er hvers konar vakning um mál er varða
gæfu og gjörvileika fjölda fólks fyrsta vörnin gegn illskeyttum
fjendum. Vímuefnin eru svo sannarlega fjendur okkar
kynslóðar, sífellt fleiri menn og konur sem lífið hefur leikið
grátt og sem hafa sjálf leikið sig grátt mega rekja örlög sín til
vímuefna og þá er rétt að taka fram að vímuefni eru bæði
áfengi og ólögleg fíkniefni. Mér varð það nefnilega ljóst eftir
að hafa sótt þessa ágætu ráðstefnu að umræðan um fíkniefni
hefur að undanförnu verið örlítið einskorðuð þar sem stór
þáttur, undirrótin, virðist vilja gleymast, þ.e. áfengið.
Vissulega er fjallað um ofurölvun unglinga í fjölmiðlum en
áróðurinn beinist nær eingöngu að ólöglegum fíkniefnum sem
náttúrulega er geigvænlegt vandamál. Hins vegar er afar
ólíklegt að unglingur sem aldrei hefur neytt áfengis eða reykt
sígarettur leiðist beint út í sterkari vímuefni. Á vandanum
verður að taka frá byrjun og undantekningarlaust er byrjunin
áfengisneysla barna sem varla eru búin að slíta
fermingarskónum. Sumir vilja tala um vanþróaða
vínmenningu en því er fljótt svarað. Ef við tölum einungis um
vínmenningu í Evrópu eru vandamálin alls staðar jafn erfið í
eðli sínu. í Norður-Evrópu, þar með talið ísland eru sterk vín
drukkin með þá ranghúgmynd að leiðarljósi að
90 M U N 1 N N
19 9 7