Muninn

Árgangur

Muninn - 01.05.1997, Blaðsíða 104

Muninn - 01.05.1997, Blaðsíða 104
RJOMI UPPSKERUNNAR ' HUGLEIÐINGAR VEGNA DVALAR í MA Árið 1935 var ég 10 ára gamall og í stöðugu bréfasambandi við pennavin frá Bolungavík. Ég á bréfin því hann sendi mér þau Ijósrituð hérna um árið. Þau eru eftirtektarverð að því leytinu til að þau lýsa sálarástandi mínu. Ég fór ekki í barnaskóla. Faðir minn er sagður hafa látið svo ummælt, að Grímur sonur hans (hann kallaði mig alltaf Grím) yrði múgsál, ef hann færi í barnaskóla. Þess i stað naut ég einkakennslu dúxanna í M.A., svo sem eins og Ingvars Brynjólfssonar og Bjarna Vilhjálmssonar. Við vorum saman í þessum dou- einkaskóla, ég og einkavinur minn Sverrir Pálsson er síðar varð skólastjóri Gaggans á Akureyri. Ég þótti skrýtinn krakki, forn í lund eins og bréfin mín til pennavinar míns fyrir vestan sýndu. Ég fór héðan úr M.A. fyrir 37 árum en þekki samt hvern krók og kima. Hér finnst mér sem ég stígi inn í það, sem mér fannst jákvæðast við umhverfið í gamla daga. Það er gott að finna að það skuli ennþá vera eitthvað fyrir hendi sem er sígilt og virðing sýnd gagnvart tilverunni og gagnvart guði og mönnum. Það getur vel verið að skólinn hafi mótað mig á sama hátt og menntaskólaæskan á Akureyri er mótuð í dag. Hún virðist vera mótuð af andrúmsloftinu í skólanum og ekki síst af skólastjórninni og honum Tryggva sem er töframaður í stjórnun. Hann er afar ákveðinn og góðgjarn og með á nótunum. Það hefur myndast einhvers konar andrúmsloft hérna í skólanum sem er svolítið gamaldags eins og er í sumum enskum heimavistarskólum. Lífsýn vegna dvalar minnar hérna er orðin miklu skýrari en áður og er hún mótuð af þessu sterka andrúmslofti. Hér eru menn ekkert að skjálfa á beinunum, kennararnir eru heldur yfirlætislaust fólk og eru í gallabuxum. Þeir taka ekki kennsluna með þessum gamla stíl eins og við gerðum. Við vorum svo andskoti fínir í öllum kennslustundum og vorum í mjög dýrum klæðnaði. Já, það var viss virðing borin fyrir þessu. Ég kunni illa við að sjá kennslukonurnar í gallabuxum og ekki var það nú skárra með lærifeðurna. Bakkus var á tímabili stærsti faktor í lífi mínu, það snerist allt um hann beint og óbeint. Ég ánetjaðist víni asnalega af tilfinningalegum ástæðum, en það er bara héraháttur og minnimáttarkennd ef menn þora ekki að horfast í augu við vín. Ég held að ég hafi ekki verið alki í venjulegum skilningi. Ég er alltof hress til að vera alki. Þeir eru margir algjörir aumingjar, letingar og engin sjálfsvirðing í þeim, 104 M U N 1 N N 19 9 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.