Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1947, Blaðsíða 16

Heimilisblaðið - 01.03.1947, Blaðsíða 16
60 HEIMILISBLAÐIÖ sem framast má verða, live ríka tilfinningu hann hefur haft fyrir synd og ábyrgS. Til þess mun meðal annars hafa orðið atvikið, sem getið er hér að framan um dádýrastuldinn. Svona þurfa þau skáld að vera, 6em verða skulu öllu mannkyni til vakningar, og skáld alls mannkynsins var Shakespeare öllum öðr- um skáldum framar. En einhver skvldi nú lialda því fram, að hið kristilena. í skáldskap Shakespeares, al- gildi sannmæla hans, liafi ekki verið persónu- leg sannfæring hans eða lífsskoðun, þá vill svo vel til, að eftir hann liggja orð, sem fela í sér persónulega, kristilega játningu. Þau standa í erfðaskrá hans, sem er rituð á dán- arári lians (1616). Erfðaskráin hefst á þess- um orðum: „Fyrst af öllu fel ég sál mína Guði á hend- ur, skapara mínum, því að ég vona og full- treysti því, að ég verði aðeins fvrir verðskuld- un Krists liluttakandi í eilífu lífi“. Þessi játning er svo afdráttarlaus, að liana fær eng- inn hrakið. Það er því staðreynd, að mesta leikritaskáld heimsins hefur opinberlega ját- að kristna trú og sama játningin kemur ber- lega fram í öllum beztu leikritum hans. „Lear konungur“ er tvímælalaust mikilfeng- asta og áhrifamesta leikrit hans, samið 1604. Þar dregur hann harmsagnir tveggja ætta saman í einn sorgarleik. Annars vegar er Lear konungur og dætur lians, en hins vegar Gloster og synir lians. Og úr þessu verður svo meist- araverk; þar kemst harmleikssnillin hæst. Hin samflækta styrjöld og ófarnan þessara ætta, hvílir á öðrum raunalegum grundvelli: spilltu og róstufullu ástandi ríkisins. Slíkt aldarfar hlýtur að enda með voðalegu hruni, en það hrun er aftur undanfari og skilyrði nýrri og betri aldar. Eftir náttmyrkrastorm eyðingarinnar, sem kollvarpar jafnt liinu ein- staka sem einu almenna, kemur logn og birta friðþægingarinnar. Þannig endar hver 6ann- ur sorgarleikur í kristilegum skilningi: Hið góða vinnur sigur um síðir. Þessu lýsir skáldið svo átakanlega í þrumu- veðrinu á heiðinni: Náttúran umhverfis liinn aldraða konung og ofurmagn sálarástríðunn- ar í brjósti lians sjálfs, er hvorttveggja í upp- námi; en innan um allar þær ógnir ómar þó alvörugaman lífsins. Það er eins og liinn spámannlegi andi skáldsins birtist hér sjálf- ur í eldingum og reiðarþrumum, til að halda refsidóm yfir spillingunni og hégómanum og birta vald hins eilífa réttlætis í heimsstjórn- inni. Þetta leikrit er hörð en heilnæm kenning Jakobi konungi I, sem þá var nýkominn tU ríkis. En það nær líka til allra þjóðhöfð- ingja á öllum öldum og með öllum þjóðunn þar sem spillingin og hégóminn sitja í önd- vegi. Skáldið er víða livassorður í þessu leikriti: Boginn er bentur, vífctu úr örvar vegi! Hvort lieltlur þú að' skyldan bagni skelkuð', jcegar valdið lýtur smjaðri? Sannorð dirfskan er drenglyndisins skýlaust skylduboð, þegar lánardrottinn lægir sig til heimsku .. • Gjör sem þú vilt, tak lækni þinn af lífi og brúka svo laun hans til að safna sjúkleik • • • f ljós mun síðar leiðast flærðin römm, og launuð verður hún með' spotti og skönun ■ • ■ Vér spillum oft, þá mest vér þykjumst bæta • ■ • Úr skúrinni þér skotrað er í lekann, úr skaðanum í voðann. — — — Hver maður, sem bjónar fyrir fé, ' bann fylgir, en reynist ei trúr: við stonni og rigning hann stalst í hlé, þú standa munt einn í skúr.--------— Hvernig má mergð af mönnum, sem þjóna tveimur lierrum, í sama húsi halda frið og sátt?--------- Ó, veröld, veröld! ef vér ekki fengjum af hverfleik þínum haturs-liug á þér, þá sætti ei lífið' sig við elli og dauða.--—' Ein langferð, herra, liggur fyrir mér, minn lánardrottinn kallar inig — ég fer. — — Þetta er nú ekki nema örlítið sýnisliorn- En nú vill svo vel til, að leikritin em rnörg til í íslenzkum þýðingum: Lear konungur, Macbetli, Hamlet, Ótlielló, Romeo og Júleí*' Stormurinn og brot úr „Márinn í FeneyjuW o. fl. Þau munu sanna það, sem hér hefur sagt verið og meira til. Eins og sagt hefur verið hér að franiaUi þá svífur ást skáldsins til áttliaganna svo víða yfir skáldskap lians. Skógarnir og heiðarU" ar komast að. Verður honum það efni í fe$* urstu líkingar, eins og sjá má af þessu ljóðG Hver lágt und laufgum við vill leggjast mér við hlið og dilla hljóð'um liáin með heiðafugluin smám? Kom hingað, kom liingað til hlíða! óvini liér þú enga sér, nema vetur og veðrið stríða.

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.