Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1947, Page 22

Heimilisblaðið - 01.03.1947, Page 22
66 HEIMILISBLAÐIÐ Antonio de Trueba Spádómurinn Nl. jHFTIR að Altos-humos greifi hafði beðið Carmenar, tók liún og ráðgjafi hennar, uhgfrú Ciriaca, að vænta þess á liverjum degi, að konunglegur sendiboði greiddi ferð sína til bústaðar sóknarprestsins til að liefja bónorð fyrir einhvern prins. En mánuðir liðu og ár, og Carmen var að verða tuttugu og fimm ára gömul, en enginn biðill kom, ekki einu sinni ráðherra án stjórnardeildar. Allt það liugarvíl, sem þetta olli, varð til þess, að fegurð Carmenar tók að fölna nokk- uð, og hún varð þess vör, með kvíða í hjarta, að' aðdáendunum tók líka að fækka. Ung- frú Ciriaca tók að missa trúna á sígauna- kerlinguna, en reyndi samt að hughreysta Carmen. — Hafðu engar áhyggjur, sagði liún, því að ennþá ertu engin herfa. Dag nokkurn, þegar presturinn var í óvenju góði skapi, kom Carmen til lians og var mjög mjúk í máli. — Frændi, sagði hún, er langt síðan þú hefur Iiitt Altos-humos greifa? — Ég heimsótti hann fyrir nokkrum dög- um, sagði presturinn. — Og er greifinn ennþá ókvæntur? — Já. . — Dæmalaust gat ég verið heimsk, að gift- ast lionum ekki! — Minnstu ekki á það, stúlka, því að ég fyllist örvæntingu, þegar mér verður liugs- að til þess. — Og befur greifinn aldrei minnzt á mig síðan? — Ekki einu orði. Hann lítur of stórt á sjálfan sig til j)ess, að honurn hafi ekki gram- izt stórlega við þig fyrir lítilsvirðingu þá, sem þú sýndir lionum. — Ég get vel skilið það, frændi. Þetta var illa gert af mér. — Áttu við, að nú mundirðu ekki neita bónorði lians? — Já, það mundi ég ekki gera. Gætir þú ANTONIO DE TRUEBA hét fullu nafni Antonio de Trueba y de la Quintane. Hann var Baski aS uppruna, fœddur 1819, en andaSist 1899. Hann ritaSi fjölda bóka, og er efni þeirra flestra sótt til átthaga lians. Allar bera þær Ijósan votl tirn átthagaást hans, ineS nœmum mannlýsingum, náttúru- lýsingum og tilfinningasemi. De Trueba var líkn IjóS- skáld og þjóSsagnaritari. MeSal þjóSsagnarita hans ma nefna skáldrit urn þjóShetju Spánar, Cid, sem barSist fyrir hinni kristnu trú upp úr aldamótunum 1000 gegn heiSingjum, og, ef trúa má þjóSsögum þeim, senr spunnizt hafa um hann, liefur hann veriS frábær ridd■ ari og göfugmenni. Sagan, sem hér er skráS, gerist hins vegar í Madrid einhverntíma á stjórnarárum Isabellu annarar, 1843—68. nú ekki, frændi niinn góður, sem ert mer svo eftirlátssamur og berð hamingju mína svo mjög fyrir brjósti, fært mig í tal við greif" ann — ég á við, með þeirri lipurð. og lagnn sem |)ér er svo eiginleg? — Hvað ertu að segja! Finnst þér sæmandn að ég sé beinlínis að bjóða hönd þína? — Nei, frændi, alls ekki. En gætirðu ekki þreifað fyrir þér. til Jiess að ganga úr skugg3 um, livort greifinn endurnýjar ekki bónorð sitt? Gerðu það, frændi, þú ert svo laginn, að koma fyrir þig orði. — Hamingjan góða! Þetta kvenfólk gæt1 fengið dýrling til að drýgja synd! En ég skal samt gera þetta, barnið gott. Ég skal heim- sækja greifaim og minnast á þig undir ein- liverju yfirskyni, og svo skulum við sjá, hvern- ig J)ví reiðir af. Daginn eftir lagði presturinn leið sína til greifans, sem tók mjög vel á móti honuni. — Verið J)ér velkominn, prestur minn, sagði liann. Mér er mikil ánægja, að J)er skuluð hafa komið til mín. Ég er nýbúinn að kaupa dýrmæta líkneskju af JesúbarninU í kapellu mína, og mér þætti vænt um, ef þer vilduð láta í ljós álit yðar á listagildi liennar. — Það skal ég gera með mestu ánægju- Þér vitið, að þegar urn dýrlingamyndir er að ræða, eru kirkiunnar J)jónar betri dóm- arar en nokkrir aðrir. Presturinn liældi líkneskjunni á hvert reip1-

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.