Heimilisblaðið - 01.01.1979, Síða 6
sézt ná að fljúga 2400 km leið á 7 klukku-
tímum.
Sagt er að skordýrið broddflugan nái
mestum hraða allra dýra. Samkvæmt stað-
hæfingu fjölmargra dýrafræðinga, hreyfir
þetta 31/2 cm langa skordýr sig með 1280
km hraða á klukkustund — en taka verð-
ur þá tölu með allmiklum fyrirvara, því
af sjálfu leiðir, að illmögulegt er að ná
henni nákvæmt.
Dýr, sem ferðast á landi, ná að vísu ekki
hraða fljúgandi fugla eða vængjaðra skor-
dýra. Samt er hraði þeirra mjög athyglis-
verður, ekki hvað sízt hraði sumra spen-
dýra. Gazella getur t. d. hlaupið hraðar
en villigæs getur flogið. Dr. Wood, sem
áður var nefndur, hefur t. d. komið villt-
um kanínum upp í 35—40 km hraða á
klukkustund, er hann elti þær í bíl sín-
um, og ýmsar hundategundir náðu 30 km
hraða á klst., en auðsjáanlega nær refur-
inn öllu meiri hraða, því að venjulega er
hann fótfráastur við allar refaveiðar —
allavega fyrsta kílómetrann. Veðhlaupa-
hundar geta hlaupið allt að hálfum km
með 58 km hraða á klst., og það jafnvel
á hlaupabraut þar sem þeir þurfa að taka
beygjur fjórum sinnum; á beinum braut-
um geta þeir komizt upp í mun meiri hraða.
Veðhlaupahestar hafa oft hlaupið enska
mílu á 1 mínútu og 32% úr sek. — en það
svarar til rúmlega 62 km á klukkustund.
Hraðamet krónhjartarins er um það bil
þetta sama.
Hraðari en gazellan og antílópan er veiði-
hlébraðinn, chetan eða gepardinn. „Á
styttri vegalengdum, upp að % km, er
veiðihlébarðinn hraðskreiðasta ferfætta
dýrið og hleypur uppi fótfráustu antilóp-
ur“, skrifaði hinn kunni veiðimaður Theo-
dore Roosevelt á sinni tíð.
1 vatni og sjó, þar sem mótstaðan gegn
hreyfingu er mun meiri en í andrúmsloft-
inu, minkar hraðinn stórum. Dýrafræðing-
urinn Emerson Stringham hefur ákvarð-
að hraða geddunnar 14 km á klukkustund
og laxins 17—18 km; aðrir dýrafræðing-
ar eru þó þeirra skoðunar, að laxinn get'
á stuttum vegalengdum komizt upp í a^
að 27 km. Hvalur getur synt 15 ensk f^
á sekúndu, þ. e. a .s. 16% kna á klukku-
stund. Ferðamenn hafa oft séð marsvín
synda meðfram skipum á mikilli ferð; Þeir
geta fylgzt með á allt að 20 km hraða. E11
bæði fiskar og spendýr geta, rétt eins og
fuglarnir, aukið hraða sinn til mikiHa
muna, þegar eitthvað liggur við.
í samjöfnuði við fiskana í sjónum og
ferfætlingana á þurru landi, hlýtur mann-
veran að teljast ærið hæggeng. Þegar Ger-
trude Ederle synti yfir Ermarsund var hun
14 klst. og 34 mínútur að synda þá 48 kíló'
metra — það er uekki nema 3% km a
klukkustund. Bandaríkjamaðurinn Petel
Ficks átti eitt sinn heimsmet í 100 111
skriðsundi á 56,4 sek, en það svarar til 6,4
km á klst.
Á stuttri vegalengd getur maðurin11
hlaupið með 30 km hraða á klst. — Jesse
Owens hljóp 200 metrana á meðaltalshrað-
anum 35,4 km á klst. En sé um leng11
vegalengdir að ræða, verður meðaltalS'
harðinn miklu minni: Nurmi hinn finnsk1
setti á sínum tíma klukkustundarmetió
19,210 km. En þar á móti kemur, að eng'
inn fugl, enginn fiskur eða annað spendý1
en maðurinn getur komizt upp í Þal)n
hraða sem hann nær með tæknilegri tU'
hjálp. Þar slær hann öllum við.
6
H E I M I L I S B L A Ð 1 P