Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1979, Blaðsíða 14

Heimilisblaðið - 01.01.1979, Blaðsíða 14
10.000 pesos! í þóknun FYRIR RUY DA LUZ dauðan eða lifandi! Corcuera. „Hvað er þetta með leyfi að spyrja?“ spurði Toomey og reyndi mikið á sig til að sjá þetta úr ökumannssætinu. „Hverjum þeim er heitið tíu þúsund í þóknun, sem nær í Ruy da Luz,“ sagði Curzon glaðlega. „Dauðan eða lifandi stendur þarna.“ Hann tók pappírsspjaldið niður af veggnum. Límið var svo blautt, að það gat límt ennþá. Curzon gekk aftur fyrir vagninn og límdi skjalið á hann, svo að allir gátu lesið það, sem fram hjá fóru. Þetta var hættulegt gaman, en Curzon hugsaði með sjálfum sér, að þannig mundi hinn rauðverulegi Ruy da Luz eflaust hafa hegðað sér. Hann sá líka, að andlit Mexíkó- búans ljómaði af aðdáun. Hann hafði auð- sjáanlega aflað sér vinar hérna. Hann sneri sér í þá átt, þar sem Cor- cuera kapteinn hafði numið staðar með hermenn sína, og kallaði til hans: „Þetta er allt of lítið!“ Sennilega hefur Corcuera kapteinn ekki heyrt, hvað Curzon kallaði, en hann hefur þó að minnsta kosti séð, hvað varð af aug- lýsingu hans. Hann sat hreyfingarlaus eins og áður og starði á mennina og vagninn, sem staðnæmzt hafði fyrir framan húsið. Curzon datt eitt augnablik í hug, hvort hann ætti að hræða hann burtu með einu skoti, en hætti þó við það. Stúlkurnar sátu rólegar og virtust auðsjáanlega hafa sætt sig við örlög sín, og hermennirnir þorðu ekki að koma nær. „Munduð þér svíkja Ruy da Luz fyrir eina vesæla tíu þúsund pesos?“ spurði hann Mexikóbúann og brosti vingjarnlega. „Aldrei, senor!“ flýtti maðurinn sér að segja. „Ekki þótt sextíu þúsund væru 1 boði.“ „Ég hefði mikla ánægju af því, að aflu mér þessara tíu þúsunda,“ sagði Jay Coul- ter öllum að óvörum og brosti ögrandi. ,,Ef ég fengi aðeins tækifæri til þess — mundi ég ekki hugsa mig um eitt augna- blik.“ „Þakka yður fyrir aðvörunina, ungf7’11 góð!“ svaraði Curzon og brosti vingjai*n' lega til hennar. „Svona hreinskilnar ættu konur alltaf að vera. Það er alltaf gott að vita, hvemig þær hegða sér,“ bætti hann við með áherzlu og hélt áfraam að horfa á Jay Coulter, þangað til hún' leit undan- „Hver er þessi stúlka?“ spurði Mexíkó- búinn hvíslandi og horfði á þessa fí^' djörfu, ungu, bandarísku stúlku. „Hún er aðeins einn af farþegunum með vagninum/' sagði Curzon hátt og grein1' lega. Maðurinn gekk dálítið nær og sagði nieð lágri röddu, um leið og hann gaut augun' um til vagnsins: „Hina þekki ég. Hún el dóttir don Gorzas Amors — þér vitið, stona óðalseigandans. Ég gizka á, að þér takið hana með yður, til þess að krefjast lausn- argjalds fyrri hana?“ „tja-a — hvers vegna ekki?“ svarað' Curzon dálítið hugsi. „Eign don Amors nær yfir geysistó1 svæði hérna í kring,“ sagði bóndinn. „Þetfa býli telst til óðalsins. Eg er ráðsmaðu1 hérna. Ef þér æskið, skal ég með glóð’1 geði segja honum frá, hvað þér krefjaS mikilla peninga fyrir hana.“ „Nei, þakka yður fyrir, ég get sjálfu1 komið boðum til hans.“ Curzon horfði yf11 héraðið, sem hnígandi sólin baðaði í rau leitu geislaskrúði. „Hvar er óðal don Go1 zas Amors?“ spurði hann. „I þriggja mílna fjarlægð héðan.“ Rúðs maðurinn benti eftir veginum, sem la vinstri út af þjóðveginum „Það er í stoi' heimilisblaði^ 14

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.