Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1917, Page 70

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1917, Page 70
I IÐONN’ Skáldið Stephan G. Stephansson. Erindi flutt á »Stephanskvöldi« í Reykjavík. Öll hafið þið líklegast einhvern tíma á æíinni séð svonefnd Grettistök. Þetta eru heljarstór björg, sem ber fyrir augun á hinum ótrúlegustu stöðum, jafn- vel uppi á öræfum. Og manni er sagt, að einhver mannlegur máltur, einhver Grettir hafi reist þau þar. Þetta þykir manni næsta kynlegt, því að bæði er kletturinn svo stór, að manni finst það miklu meira en við meðalmanns hæfi að bisa honum, og svo er hann eitthvað svo ólögulegur, að manni íinst, að maður geti ekki fundið nein tök á honum. Kveðskapur Stephans G. Stephanssonar er slíkt andlegt Grettistak, reist á öræfum lífsins, lengst vestur undir Klettafjöllum. Hann er harður og óþjáll við- komu í fyrstu og hrindir manni hálfgert frá sér. Og svo er hann eitthvað svo fyrirferðarmikill og þungur í vöfunum, að manni finst sem maður geti ekki með neinu móti við hann ráðið. En athugi menn hann nánara, má sjá hinar furðulegustu málmæðar í lion- um. Og komi maður enn nær, má sjá hreina og tæra holtalind spretta upp undan honum, einhverja þá lífsins lind, er bogar upp úr dýpstu fylgsnum jarðar- innar. Þetla er skáldæð Stephans G. Steplianssonar. Óðar en varir er þessi uppsprettulind orðin að læk og lækurinn orðinn að stórfljóti. Það er nú í sjálfu sér enginn merkisatburður, að lækur verði að stór- fljóti, sízt í leysingum á vorin. En viljið þið nú ekki samt sem áður heyra, hvernig St. G. St. lýsir þessu sjálfur í kvæði sínu »Lækurinn«. (Andvökur II, (»5):
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.