Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1917, Page 73
IÐINN]
»Að mold skaltu verða«.
67
Hverjum mun hljómurinn beygja
hálsinn að kumbla teig?
Mér heyrist moldin hvísla:
»Menningin« — liún er feig!
Guðnuindiir Friðjónsson (1917).
Tvennskonar menning.
— Hugleiðing, —
Ekki gel ég staðist freistinguna að taka mér undan-
farandi kvæði fyrir texta í ofurlitla hugleiðingu. —
Þótt hárið sé farið að gisna og grána og maður
sjái ekki út yfir þelta veraldarbál, já, jafnvel þótt
manni finnist öll hin svonefnda »menning« ramba
»á Helvílis barmi«, eins og Þorsteinn Erlingsson
kemst að orði, finst mér ekki full ástæða til að ör-
vænta og halda því fram, að menningin sé feig, og
að hlutverk mannsins i heiminum sé ekki annað en
það, að. auka:
-----cigu jarðar
um eina klif af mold.
Mér finst, að sá sem þekkir eitthvað til sögu
mannsandans, ætli að geta vænst þess, að honum
nú eins og endrarnær væri farið líkt og þeim fugli
Pönix, sem þrátt fyrir það þótt hann sé brendur og
a bál borinn, stígur jafnan gullfjallaður upp úr ösk-
anni, stefnir til sólar og syngur nj'jan söng.
Eg hefi nú síðustu árin, meðan ég hefi verið að
iást við andlega sögu Rómverja og hrun hinnar
glæsilegu rómversku »menningar«, ekki getað varist
5*