Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1924, Side 17

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1924, Side 17
IÐUNN Af Alftanesi. 255 finnur engan. Hann fer út í fjós og spyr fólkið þar spjörunum úr. Enginn hafði komið. Við meira varð ekki vart að því sinni. Önnur sagan er frá áliðnu sumri 1921, um mán- aðamót ágúst- og septembermánaða. J. t*. var þá kvæntur og þau hjónin sváfu niðri. Einni stundu eftir miðnætti vekur frúin hann, og segir, að umgangur sé mikill um húsið niðri, sem hún skilji ekkert í. Honum heyrist þá gengið úr forstofu til eldhúss, og hurð látin aftur, sem þar er á milli. Hann heldur, að einhver hati sjálfsagt gengið út úr húsinu, en hún telur umganginn meiri en svo, að hann stafi af því einu. Gluggi á svefnherberginu var kræktur opinn. Með- an þau voru aö tala um þetta, var barið á útidyra- hurðina. J. t*. fór þá ofan úr rúminu og út í glugg- ann, og spurði, hver væri að berja. Enginn anzar. Pegar hann er að snúa sér við frá glugganum, heyrir hann forstofuhurðina skellast af heljarafli. Hann kveikir tafarlaust og fer fram í nærfötunum einum. Hann hafði tekið eftir því, að útidyralyklin- uin hafði ekki verið snúið. Vel heyrðist inn í svefn- herbergið, hvenær sem það var gert. Svo að hann býst við, að hurðin hljóti að vera ólokuð. En hún var lokuð, að innan, eins og hún átti að vera. t*á fer hann inn í öll herbergin, sem sofið var i. AUir voru i fasta svefni. Gestur svaf þessa nótt í stofunni norðan við for- stofuna. Hann hafði um kvöldið, eftir að allir voru háttaðir, heyrt riðið heim að húsinu og að glamraði í beizlisstöngum. Sömuleiðis hafði hann heyrt barið á útidyrnar og umgang um húsið. Honum hafði ekki komið annað til hugar, en að gestir væru komnir; og hann hafði sofnað út frá harkinu.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.