Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1924, Page 23
IÐUNN
Af Alftanesi.
261
arburður engar illar afleiðingar haft. Hann hefir þá
valdið nokkurum bænarstundum og engu öðru. Mér
finst, að þeir riddarar rétttrúnaðarins, sem ekki geta
látið þá í friði, sem ant er um rannsókn dularfullra
fyrirbrigða, ættu að geta þolað það. Ég hefi auðvitað
leitað leyfis konunnar minnar til þess að birta þessa
sögu. Því leyfi fylgdu eftirfarandi ummæli hennar:
»Láttu þess þá getið, að ég ráði hverjum lesanda
Iðunnar, sem kann að verða fyrir sams konar reynslu
og ég, að taka ráðið, sem ég tók. Gnginn getur haft
ilt af því«.
Eg er alveg á sama máli.
Hagyrðingar!
Idunn snýr sér nú til ykkar og trúir ykkur fyrir
þvi að hana langar til að fá um sig fallega ferskeytlu
að istenskum sið.
Höfuðkost mun hún telja, að efni sé skáldtegt og
hugsun hnittileg.
Kostur verður talinn að dýrt sé kveðið.
Iðunn horgar 50 kr. fyrir bestu visuna, en þó pví
aðeins að henni þykir einhver vísan pess verð, að
halda henni á lofti.
Askilinn er fullkominn einka-eignarréttur á verð-
launuðu vísunni.
Aðrar góðar vísur verða ef til vill birtar og þá
greidd einhver póknun fyrir.
Vísurnar mega ekki koma seinna en í árslok 1924.