Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1924, Blaðsíða 26
264
Magnús Jónsson:
iðunn
Eins og nærri má geta var alt gert til þess ad
koma bikarnum í lag aftur eftir hnjask það og ó-
hreinkun, sem hann hafði orðið fyrir, og tókst þaft
vel, nema að því leyti, að dældir var ekki unt að
rétta við nema með ofmikilli hættu á skemdum.
. Kaleikurinn er tvöfaldur allur. Innri bikarinn er
grófgerður og skrautlaus með öllu, en ytri bikarinn
er afar mikið skreyttur margskonar myndum og
flúri. Víða er bann gegnskorinn og skin þar i innri
bikarinn. Undir bikarnum er stétt með því lagi,
sem ekki þekkist nema frá tveim fyrstu öldunum e.
Kr. Til eru nokkrir bikarar með þessu lagi, og eng-
inn yngri en frá 1. öld e. Kr. Bikarinn eða kaleik-
urinn er 19 sm. á hæð og í þvermæli 18 sm. efst,
þar sem hann er víðastur.
Skrautið utan á kaleiknum er mjög margbrotið og
smágert. Dr. G. A. Eisen, fornfræðingur við Kali-
forniu háskólann, sem skrifar bók þá um kaleikinn,
sem áður er nefnd, hefir verið í mörg ár að grafast
eftir merkingu hvers eins, sem þar er myndað og
táknað. Fyrst af öllu er að nefna þar mynd af Jesú
Kristi. Sést framan á andlit hans og er hann í skikkju
líkri rómverskri tógu. Stjarna, dúfa og lamb eru
tákn þau, sem taka af öll tvimæli um það, af hverj-
um myndin sé. Með hægri hendi bendir hann á fat
með sjö brauðum og tveim íiskum og hveitiaxi. En
fyrir neðan er rómverski örninn, og hlýtur hann
blessun af kristnu trúnni. Sinn til hvorrar handar
standa þeir Pétur og Páll, og er Pétur til hægri
handar, eins og tíðkaðist i grísku kirkjunni. Pá eru
myndir af Júdasi (ekki Ískaríot), Jakobi yngra,
Andreasi, sem var orðinn pislarvottur áður en bikar-
inn var smíðaður, Lúkasi, Markúsi og Jesú á æsku-
skeiði. Andlit hans minnir þar mjög á andlitsfall
Kristsmynda í katakombunum, Matteusi og bræðr-
um Jakobi og Jóhannesi Zebedeussonum. Þessar