Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1924, Side 27
IÐUNN
Antiokkíu kaleikurinn.
26S
myndir telja fornfræðingarnir vera samtiða myndir
við þá, sem þær eru af, og megi því búast við að
þær séu réttar.
Dr. Eisen ver miklu rúmi til þess að útlista tákn
þau, sem mörkuð eru á kaieikinn. Eru þau öll úr
biblíunni, en engin af þeim táknum, sem koma upp
í kirkjunni síðar, t. d. eftir daga Konstantinusar.
Dr. Eisen dregur ýmsar ályktanir af því, sem lesa
megi út úr kaleiknum. T. d. segir hann, að þar sé
sönnun fyrir því, að fyrstu kristnu mennirnir töldu
svo, að Jesús hefði tvisvar mettað fjölda manns.
Hann segir að þar sé líka sönnun fyrir þvi, að
Jóhannes postuli sé höfundur fjórða guðspjallsins o. fl.
Hvað sem því líður er kaleikur þessi mjög merki-
legur. Og merkilegast mun þó ýmsum þykja, ef hér
væri í raun og veru fundin sönn og lik mynd af
Jesú Kristi. M. J.
Lesendur Iðunnar!
Sendið ritstjóranum sem allra oitast línu um þaö,
hvaö ykkur þykir best í hverju hefti, hvaö næst
best o. s. frv.
Með því vinnið þið aö því, að fá það í tímaritinu,
sem þiö viljið helst, og ritstjórinn veit betur eftir
liverju er mest sókst.