Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1924, Side 34

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1924, Side 34
272 Björn Pórðarson: IÐUNN fálkanum var kastað. Purftu því veiðimannaflokk- arnir oft að þeytast langar leiðir yfir grafir, skurði, keldur, stokka og steina, án þess menn gæfu því nokkrar gætur hvað fyrir varð, því að það galt að hafa augun á leiknum. Henti þess vegna oft á veið- um þessum, er konur einnig tóku drjúgan þátt í, margskonar slys, líftjón og limiestingar. I islenskum fornritum er ekki oft getið veiði með fálkum. Sem dæmi, bæði úr Noregi og Svíþjóð, skulu þá nefnd: Magnús konungur góði »fór á veiðar einn dag með haukum og hundum« (40 ísl. þættir bls. 135). í Gautrekssögu I. kap. segir, að það hafi verið besta skemtan Gautreks konungs, að veiða með haukum, er merkir óefað það sama, sem veiði með fálkum. En best er þessu lýst hjá Snorra (Hkr. k. 89) og sýnir frásögnin, að hann hefir kunnað skil á veiðiaðterðinni. Hann segir svo: »Þat var einn dag snimma at konungur reið út með hauka sína ok hunda ok með honum menn hans. En er þeir fleygðu haukunum, þá drap konungshaukr i einu renzli II orra; ok þegar eftir þat rendi hann enn fram ok drap III orra; hundarnir hljópu undir ok tóku hvern fuglinn er á jörð kom. Konungr hleypði eptir ok tók sjálfr veiði sína ok hældisk mjök, segir svá: »langt mun yðr flestum til áðr þér veiðið svá«. Þeir sönnuðu þat ok segja, at þeir ætluðu, at engi kon- ungr myndi svá mikla gæfu til bera um veiði sína. Reið konungr heim ok allir þeir; var hann þá all- glaðr«. Konungsvalurinn hefir verið með afbrigðum góður, því að það venjulega var, að fálki drap ekki nema einn fugl í rensli og rendi ekki nema eitt sinn að morgni. í Danmörku var snemma tíðkuð veiði með fálk- um. Þótt frásögn Krókarefssögu um það, að Refur hafi fært Sveini konungi Úlfssyni 50 fálka, þar af 15 hvíta, frá Grænlandi, sem að líkindum er nokkuð

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.