Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1924, Síða 36
274
Björn Þórðarson:
IÐUNN!
sem gjafir frá Noregskonungi til Englakonungs; en
fálkana veiddu Norðmenn bæði heima tyrir hjá sér
og fengu þá frá íslandi. í skýrslu ármanns Hinreks
II. Englakonungs frá árinu 1169 er þess getið, að
maður einn skuldi konunginum einn gásarhauk
norskan og val íslenskan (Dipl. Isl. X. Nr. 1). Áriö
1177 er vikið að hinu sama, en að maðurinn hafi
þá greitt af hendi valinn (D. I. X. Nr. 2). Engla-
konungur sendi og á þessum árum skip til Noregs
til að flytja fálka er þar voru keyptir og gerir út
menn til fálkakaupa. Hákon gamli Noregskonungur
gerir sér og mjög far um að afla sér fálka til þess
að senda þá að gjöf ýmsum þjóðhöfðingjum. Áriö
1223 eða 1224 sendir hann trúnaðarmenn sína til
Hinriks III. Englakonungs með sex geirfálka og gásar-
hauka og lofar fleirum þegar menn sínir komi aftur
frá íslandi með fugla (D. I. X. Nr. 3), og árið eftir
gerir hann út sendimenn til Hinreks III. og skýrir
nú frá því, að hann hafi fyrir tveim árum sent menn
sina til íslands til þess að veiða þar fugla handa
Hinreki konungi. Hafi menn þessir orðið að þola
ótrúlegt hungur og kulda í íshafinu, og séu þeir ný-
lega komnir aftur með fugla þá, sem þeir hafi veitt;
sendi hann þvf nú 13 fálka, 10 gráa «n 3 hvíta, og
biður Hinrek konung að þiggja þá jafn-vinsamlega
og hann gefi. Og enn fremur segir í bréfinu: »ef
þér metið þetta á líkan veg sem faðir yðar og fyrir-
rennarar, sem sagðir voru að telja íslenska fugla
dýrmætari gulli og silfri, þá undanfellið þér ekki að
láta oss njóta þessarar siðustu gjafar, þar sem vér
með svo miklum erfiðismunum og fyrirhöfn höfum
lagt alt kapp á, eins og fyr, að ná í fugla þessa«-
(D. I. X. Nr. 5). Af þessu, sem nú hefir verið sagt,
má marka hvílíkar gersemar íslenskir fálkar hafa
verið taldir í Englandi. En að Hákon gamli hafi
getið sér orð fyrir fálkagjafir sínar, má ráða af því.