Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1924, Side 38

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1924, Side 38
276 Björn Þórðarson: IÐUNN í annarslandi, hafa fálkaveiðar á almenningum, afréttum og fjöllum, að líkindum verið frjálsar. En svo skeður það, að þegar taka skyldi Jónsbók í lög voru ákvæði bókarinnar um fálkaveiðar eitt þeirra atriða, sem ágreiningur varð um milii Árna biskups vegna kirkj- unnar og konungsvaldsins, og hafa menn af þessu dregið þá ályktun, að erkistóllinn í Niðarósi hafi þá .haft einkarétt til fálkatekju hér á landi (F. J. Hist. eccl. II. 15). í frumvarpi bókarinnar hefir staðið ákvæði um, að konungur mætti vali veiða á hvers manns jörðu og án nokkurs gjalds til landsdroltins, og hefir hann þannig ætlað sér í svipan að taka undir sig allan rétt til fálkaveiða. Móti þessu reis Árni biskup. Hafði hann sumarið 1279 fengið bréf erkibiskups, þar sem hann bauð honum »at láta eigi konungsmenn draga þat trelsi undan kirkjunni, sem hon hafði áðr land kom undir konungdóminn, þat var at kaupa frjáls- liga brennustein ok fálka«. (Bps. I, 713). í þessu er ekki fólgin nein einkaréttindi til kaupa, og til þess að öðlast þenna rétt þurfti engin laga- fyrirmæli; alt öðru máli var að gegna í Noregi, þar sem konungur hafði einkarétt til fálka. En nú hafði erki- stóllinn fengið í Norgi með páfabréfinu frá 1194 takmarkaðan rétt til að kaupa fálka, og þenna rétt hefir hann að vísu notað hér á landi einnig, en alveg óskorað, þar sem konungur hafði þá engin slík réttindi. Með því að konungur fengi einkarétt til veiða, hurfu réttindi erkistólsins og því hlaut kirkjan auðvitað að mótmæla, enda hefði kirkjan þá haft minni rétt hér en hún hafði i Noregi. í deilum sinum við Rafn vísar biskup einnig til sátta- gerðarinnar milli erkibiskups og Magnúss konungs frá 1273, þar sem forn frelsi kirkjunnar skildi hald- ast um fálkaveiðar, og virðist hann því ekki fara þar öðru fram, en að erkistóllinn njóti sama rétlar

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.