Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1924, Side 40

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1924, Side 40
278 Björn Þórðarson: IÐUNN og fjöllum, þarf hann hinsvegar ekki að greiða gjald fyrir, þar sem það land taldist konungs eign, sem enginn þegn hans gat helgað sér. Hinsvegar er þess hvergi getið, að konungur hafi forkaupsrétt að fálk- um, og er það í góðu samræmi við það, að kaupa- réttur kirkjunnar hélst. En i réttarbótinni frá 1314 (Jb. bls. 298 § 20), er ákvæði, sem getur hafa verið sett bæði til ákvörðunar því, hversu mikið gjald fálkafangarar konungs skyldu gjalda, og að öðru leyti verið almenn regla, þegar jarðeigandi leyfði öðrum fálkaveiði í sínu landi, að »ef maðr tekr fálka á annars manns jörðu, eigi sá tvo hluti verðs er á jörðu býr, en sá þriðjung er tók«. Eftir þetta finst ekkert alment ákvæði um fálkaveiðar hér á landi fyr en 300 árum síðar. Hverjar framkvæmdir urðu um fálkaveiðar á næstu öldum er ekki kunnugt. Skílriki fyrir því munu ekki vera til að neinu ráði. Þó er þess getið 1542 (D. I. XII. nr. 60), að fuglafangarar liggi hér v'ð og kon- ungur hafi af því tekjur. Hér er eflaust um fálka- fangara að ræða, sem tekið hafa veiði á leigu. Hvort svo hafi verið að staðaldri er óvíst, en hins má geta til, að kirkjan hafi meðan hún hafði völd neytt síns réttar, þó ekki finnist nú bréf fyrir þessu hér á landi. Það er aftur víst, að íslenskir fálkar voru á öllum þessum öldum, 14., 15. og 16. öld, mjög eftirspurðir, því að ágæti þeirra ruddi sér stöðugt til rúms í álf- unni. Það getur því ekki verið vafi á því, að þjóðir þær, Englendingar, Hollendingar og Þjóðverjar, er mesta höfðu sigling hingað, bæði til fiskiveiða og kaupskapar, hafi reynt að ná í þá fálka, sem þær gátu bæði með veiðum og kaupum. Fálkatekja landsins hefir því lent hjá þessuin þjóðum einkum, en konungur hefir haft hennar lítil not. Sem dæmi er styrkir þetta, má geta þess, að þjóðverjar þeir, er rændu Bæ á Rauðasandi 1578 fóru þangað eftir

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.