Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1924, Side 48

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1924, Side 48
286 Björn Þórðarson: IÐUNN meisturunum í öllum greinum og tóku svari fálka- fangara og sögðu, að minni veiði hvítfálka nú en áður sýndi að eins það, að af þessum fuglum væru færri til nú en þá, Ennfremur töldu þeir ekki á- stæðu til að draga fálkafangarana fyrir lög og dóm þótt þeim hepnaðist ekki veiðin, enda væri það örð- ugt sýslumönnum og amtmönnum að hafa nákvæmt eftirlit með fálkaföngurum, er stunduðu veiði ef til vill á öðru landshorni. Að lokum leggja amtmenn- irnir það til, að þar sem takmarka eigi gráfálka- tökuna við tölu hinna hvítu og hálfhvítu, verði hlut- fallið 1 : 4 þannig, að þeir sem komi með 1 hvítan eða hálfhvítan af þeim séu leknir 4 gráir o. s. frv. A þetta félst stjórnin. Eins og getið var hér að framan, áttu fálkafang-> ararnir að skila fálkunum á Jónsmessu til Bessastaða, siðar til Reykjavíkur, en þangað var fálkahúsið flutt 1763. Veiöarnar skyldu byrja 1. mars og fálkafang- arar að annast fálkana á sinn kostnað þar til þeir voru afhentir. Var það nokkur vandi, því að þeir þurftu nákvæma hirðu og gott fóður. Fátæklingar gátu ekki staðið straum aí þessu. Flutningi fálkanna lýsir Horrebow (bls. 149) þannig, að flutningsmenn- irnir séu ætíð ríðandi; einn maður geti reitt 10—12 fálka; hafi fálkarnir hettu nrður fyrir augu og sitji bundnir á þverspítu á krosstré, sem flutningsmaður heldur með hægri hendi og lætur neðri enda stang- arinnar standa i ístaðinu. Fálkamaður konungs, eða »ferðafálkarinn«, sem hann var ætið kallaður, kom með þjónum sínum á Hólmsskipi og síðar á sérstöku fálkaskipi hvert vor um Jónsmessuleytið. Ferðafálkarinn veiddi aldrei sjálfur. Hann velur úr þá fálka, sem hann telur brúklega. Gráfálkar máttu helst ekki vera eldri en 2ja ára og hvítfálkar ekki eldri en 3ja; um þá mun þeirri reglu þó oft ekki hafa verið fylgt, þeir teknir

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.