Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1924, Síða 65
IÐUNN
Fjárbænir og örlæti.
303
en til hnífs og skeiðar. Og það er gleðilegt, að fram-
lög einstakra manna til ýmissa þjóðþrifafyrirtækja og
líknarstarfa virðast liafa farið vaxandi að sama skapi
sem velmegun óx í landinu. Enda er andleg heil-
brigði þjóðarinnar meðal annars undir því komin, að
svo verði jafnan. Ekkert væri henni verra en að hafa
kotungs hjarta með konungs efnum. Konungshjarta
með konungsefnum á að vera markmiðið. Ég er ekki
einn af þeim, sem óttast mjög auðsafn einstakra
manna hér á landj, því að ég hefi þá trú, að rausn
og stórmenska komi hér því betur í ljós sem menn
alment auðgast betur. Og það er von mín, sem styðst
við ýmislegl, er fram hefir komið á síðustu árum, að
einstakir menn, sem græðist mikið fé, gefi það að
miklu leyti í lifanda lífi eða eftir sinn dag til fram-
kvæmdar þeim hugsjónum, er þeir telja fegurstar og
unna mest. Þeir, sein t. d. unna vísindum og listum,
munu gefa háskóla vorum stórar gjafir, stofna rann-
sóknarslofur, námsslyrki og starfsjóði fyrir efnilega
visindamenn — og helztþá, errannsaka auðsuppsprett-
ur lands og þjóðar, andlegar og líkamlegar, — stofna
sjóði til bókaútgáfu, til styrktar og verðlauna efni-
legum listamönnum, brautryðjendum og hugvits-
inönnum á hvaða sviði sem er. Með slíkum hætti
geta auðmenn haldið áfram að starfa með þjóð
sinni um ókominn aldur að hverju því marki, er
þeir telja heillavænst og fegurst, og þannig lifað þótt
þeir deyi.
Ekkert er eins merkilegt um auðinn og það, að
honum má, ef rélt er á haldið, breyta í hver þau
gæði, sem menn geta skapað. Og ekkert er eins veg-
legt og ábyrgðarmikið starf fyrir auðmanninn og það
að ráðstafa vel þeim auði, er hann hefir eignast.
Hann ræður yfir þjónustusömum anda, sem er boð-
inn og búinn til að gera hvað sem hann skipar