Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1924, Page 76
314
Ritsjá.
IÐUNN
ekkert registur. Rað þarf að fara að ala á pví við útkomu
hverrar einustu bókar af pessari tegund, að hafa við þær
registur, ekki endilega tæmandi, en vel leiðbeinandi regist-
ur. Pað gerir bókina ekki helmingi heldur margfalt not-
hæfari, og þarf þó ekki að taka nema örfáar blaðsíður ef
smátt er prentað og vel valið. M. J.
Sundbók í. S. í. I. og II. hefti.
Þessi þarfa bók kom út 1920 og 1921 og er hún mjög
snotur að frágangi, með fjölda mynda til skýringa og lag-
lega bnndin. Er þar fjöldamargt rætt er sundiþróttir varðar,
sund, sundkensla, æfingar, bjarganir, lifgunaraðferðir o. fl.
Er þetta víst nokkurnveginn fullnægjandi bók um þetta alt,
vel og lipurt skrifuð. Ómissandi bók fyrir hvern mann,
sem hug heflr á sundi og vill kunna það vel, og gæti bjarg-
að mörgum mannslífum á ári hverju ef allir, einnig þeir
sem ekki kunna sund kyntu sér þessa bók vel (vegna lífg-
unaraðferðanna). Ættu sem allra flestir að kunna lífgun-
araðferðirnar vel, því að enginn veit hvenær hann með
því getur unnið það verk, sem mestu þykir varða, að bjarga
mannslífi.
í. S. í. hefir unnið þarft verk með því að koma þessari
bók út. M. J.
Krislo/er Visted: Vor gamle bondekultur. Kria. J. W
■Gappelens forlag. 1923.
Cappelens bókaforlag í Kristjaniu hefir sent undirrituð-
um til umsagnar þetta ágæta verk K. Visteds í nýrri, auk-
inni og mjög vandaðri útgáfu. Er bókin 374 stórar bls.
með 216 myndum og 4 litprcntuðum myndum og allur frá-
gangur hinn vandaðasti.
Á eftir inngangi er fyrst kafli um byggingarlag til sveita
í Noregi á ýmsum tímum, þá um búninga og loks um listir
og listiðnað. Alt er þetta með fjölda mynda til skýringa, er
sýna hve fjölbreytt og að ýmsu sérkennileg norska bænda-
menningin hefir verið og er enn víða til sveita. Væri gam-
an að eiga nokkuð svipað um íslenska menning á liðn-
um tímum.
Þá koma nokkrir kaflar um ýmsa háttu og siðu manna