Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1924, Page 77
IÐUNN
Ritsjá.
315
við ákveðin tækifæri, fæðingu, brúðkaup, dauða og greftrun,
veislur og gildi, drykkjusiðir og árlegar hátíðir. Kennir
margra grasa í þessum köflum, og er furðulegt alt það
víravirki sem reynsla og skáldskapur geta fléttað, þar sem
fátt glepur og fólkið fær að vera í næði með náttúrunni.
Um timareikning á prímstafnum er einn kaflinn. Loks eru
kaflar um þjóðsögur og þjóðtrú, visnaskáldskap og æfin-
týrasagnir og síðast afar ýtarleg skrá um heimildir að þess-
um efnum öllum, er sýnir hvilík kynstur Norðmenn hafa
um þessi efni fjallaö og skrifað, og er skráin þó ekki bundin
við Norðmenn eða norskar bókmentir eingöngu eins og
vænta má.
Mætti þessi bók vel vekja okkur íslendinga til þess að
snúa okkur meira að menningarsögu okkar en við höfum
gert fram að þessu. Ýmislegt er einmitt nú að glatast í
róti nútímans, og er ekki víst að seinna sé vænna að safna
ýmsu. M. J.
Páll E. Ólason: Menn og mentir siðaskiptaaldarinnar
á íslandi. III. bindi. Guðbrandur Porláksson og öld hans.
Rvik. Bókav. Árs. Árnas. 1924.
Pað var stórt verkefni sem dr. Páll E. Ólason innibatt í
fyrirsögn þessarar bókar, og í upphafi voru ekki allir vissir
um, að hann mundi klaklaust frá því komast. En verkið
hefir gengið fram vonum fyr, og það sem bezt er, þessi
þrjú bindi eru rétt táknuð með stigbreytingunni: góður,
betri, beztur.
Pað er mikið at elju og erfiðisvinnu saman komið í þessu
bindi. Fyrri partur bókarinnar, bls. 1—424 er um efling
konungsvalds á íslandi. Verður ekki hjá því komist, því
að það er beinlínis höfuðeinkenni tímabilsins, og undir-
staða allra kjara þjóðarinnar. Pað er ógurleg saga, sem
hér er fram sett í þurru vísindagerfi og án allra málblóma,
og hér er í fyrsta skifti til fullnustu rakinn allur þessi vefur.
Fyrri hluti þessa kafla er um tekjur konungs af landinu,
en þær voru honum eitt og alt. Landið er bókstaflega
skoðað eingöngu sem mjólkurkýr í kongsbúinu, og maður
verður að taka á öllu sinu til þess að trúa siðabótaráhuga
Kristjáns 3. þegar maður sér hve mikiö hann hefir upp