Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1924, Side 79
IÐUNN
Ritsjá.
317
meira en nokkur meðalmaður vinnur. Hann er rðggsamasti
biskup í allri kirkjustjórn. Hann hefir með liöndum stór-
kostlegar framkvæmdir í búskap og öðru. Hann smíðar
og grefur og pentar himinlíkan og gerir margt fleira ágætt
af kunnáttu sinni og hagleik. Og þá er enn ónefnt paö,
sem nafni hans mun æ uppi halda, og pað er bókaútgáfu-
starfsemi hans, liklega eitthvert áhrifamesta starf í pá átt,
sem nokkur íslendingur hefir unnið.
Um bók pessa vildi eg skrifa miklu fleira ef Iðunn leyfði.
Hún má hiklaust teljast með merkustu sagnaritum vorum.
Pað er sjálfsagöur hlutur, að eitthvað mætti að finna, og
pó margt fjarska mikið álitamál. En benda má á einn kost
bókarinnar og pað er, hve skinandi fallegur sögustill er á
henni. Efnið leyfir höf. ekki viða spretti mikla, en pó eru
í síðari pætti víða ágætlega skrifaðir kaflar. Vil eg benda
til dæmis á kaflann um »morðbréfin« og fleiri kafla, og
yfirleitt er bókin mjög skemtileg aflestrar par sem um
slíkt getur verið að ræða. Engin von að kaflinn um tekjur
konungs sé beinlinis eldhúslesning. En pá er pað önnur
skemtun, sem í staðinn kemur, fögnuðurinn yfir að fá að
vita rétt, og betur en áður var vitað. M. J.
Guðm. G. Hagalín: Strandbúar,sögur. Seyðisf. MCMXXIII.
Vestan úr fjörðum, Melakóngurinn. Rvík 1924.
Guðm. Hagalin er að gerast umsvifamikill, og eru hér
tvær bækur eftir hann á tveim árm.
Strandbúar eru 6 sögur. Tvær af þeim hafa áður verið
prentaðar svo að vér vitum. Ad leikslokiun er falleg saga,
tragedía með 3 persónum, tveim karlmönnum og einni
stúlku. Hún er nú orðin gömul og rifjar upp fyrir sér
gamla æfintýrið á síðustu göngunni. Næsta sagan, Tófu-
skinnið, er henni mjög ólik, ágæt gamansaga, og sýnir Haga-
lín hér, eins og í fyrri sögum sínum að honum getur tekist
vel að slila græskulausa gletni. Sagan er einhver besta saga
Hagalíns og pó viðar væri leitað. Iiefndir er lang lengsta
og mér liggur við að segja leiðinlegasta sagan. Finn ekki í
henni púðrið. Himnabréf er átakanleg saga af heilögum
einfeldningi, stórum í öllum barnaskapnum. Barómetið og
Ilákarlaveiðin eru liressilegar sögur af sjógörpum og peirra