Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1926, Side 24

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1926, Side 24
102 Einar H. Kvaran: IÐUNN þekking eínafræöinganna notuÖ til áö búa til eitrað gas, til þess að myröa menn af óvinaþjóðunum með andstyggilegum hætli“. „Ekkert I eðli mannsins er í raun og veru ilt, hversu svo sem honum hefir mistekist og hann vilst. Þeim krafti, er hann notaði til syndar, hefði mátt beita í gagnstæða átt og má enn. Sá kraflur getur orðið þjónn andans, í stað þess að ríkja yfir honum; getur orðið verkfæri hans, í stað þess að vera óvinur hans. Þetta, sem vér nefnum hið lægra eðli, er í frumrót sinni sami krafturinn, sem orsakar allar hinar mestu og göfugustu framkvæmdir mannanna, þegar honum er beint í rétta átt. Taktu sem dæmi hvaða illverk sem vera skal. Qraföu fyrir rætur þess og komstu að, hvers vegna var það, sem það var, og þú munt komast að raun um, að þeim krafti, sem lá að baki þess, hefði mátt beita heiminum til blessun- ar, í stað þess að verða þeim til ógæfu, sem hann kom niður á. Það eru til í sérhverjum af oss tveir máttuleikar, betri og verri maður, og þó eru þeir báðir sami maðurinn; hið sama lífsafl framleiðir báða. Glæpamaðurinn á oft til áræði og dugnað ; það hefir að eins beinst í öfuga átt. Hann hefði getað orðið einn af nytsömustu framkvæmdarmönnum þjóðfélagsins. Drykkjumaðurinn, sem lét meðfætt fjör sitt leiða sig út í synd og spilling, hefði getað beint þeim guðlega krafti sér og öðrum til blessunar". Svo leyfi eg mér að spyrja menn, hvort þeim finnist ekki þetta aðgengilegri og sennilegri skýring en sú kenning tvíhyggjunnar, að með oss búi ill öfl, sem séu angar af djöfullegu valdi úr ríki myrkranna. Og ekki get eg að því gert, að tal S. N. um illu, djöfullegu öflin, utan við oss og í oss, hefir leitt huga minn að atviki, sem gerðist fyrir skömmu í Lundúnum og skýrt er frá í enskum blöðum í vetur. Villimanna- höfðingja frá Suðurálfunni var sýnd vél, sem var að prenta eitt af stórblöðum Englands. Hann horfði um stund á þetta gífurlega samsafn af glampandi hjólum og völturum, sem alt var að snúast með feykihraða. Hann var nokkurn tíma eins og frá sér numinn af undrun. Þá sneri hann sér að manninum, sem var að sýna

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.