Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1926, Blaðsíða 85
IÐUNN
Ritsjá.
Einar Olgeirsson: Rousseau. Akureyri. Bókav. Þorst. M..
]ónssonar.
Bók þessi er sú fyrsta, sem á prenti birtist í fyrirhuguðum
fræðibókabálki. Nefna útgefendurnir bálkinn allan „Lýðmentun".
A að skifta honum í deildir, og heitir ein þeirra Brautryðjenda-
sögur, og er þessi bók sú fyrsta í þeirri deild. Hefir stundum
áður verið byrjað á útgáfufyrirtækjum, sem þessu líkjast, en ekki
orðið verulegt úr. Væri óskandi að nú héldi áfram, því að vissu-
lega væri gaman og gagn að því að fá vel ritaðar bækur um hitt
og þetta, sem öllum almenningi væri fróðleikur í.
Bók þessi er að minsta kosti með þrennum hætti fyrsta bók.
Hún er fyrsta bók í þessum fræðibókabálki. eins og áður er sagt.
Hún er fyrsta bók á íslensku um Rousseau og hún mun vera
fyrsta bók höfundarins. Ætti því á allan hátt að vera nýjabragð
að henni.
Ekki verður annað sagt en mjög svo myndarlega sé af stað
farið. Eg er að vísu ekki svo kunnugur Rousseau, að eg geti að
því leyti efnislega dæmt um bókina, en hún er prýðilega rituð,
einföld, fjörug og talsvert djarfleg frásögn. Lýst bæði æfi sjálfrar
höfuðpersónunnar, aldaranda og stefnu og gerðum Rousseaus.
Mjög virðist og höfundurinn gæddur þeim góða sögumeistarahæfi-
leika, að draga sjálfan sig í hlé, en láta atburði og sögupersónur
njóta sín, án þess að skjóta undan, bæta inn í eða fella sleggju-
dóma. Má vænta sér hins besta af honum sem rithöfundi ef hann
heldur svo áfram. *
Frágangur á bókinni er góður. Tvær myndir af sögupersónunni,
önnur á kápu, en hin á blaði framan við bókina. En æskilegt
hefði verið og líklega fult svo heppilegt fyrirtækinu, að hafa bók-
ina í laglegu bandi, og marka með því þessum bálki sérstöðu —
með sérstökum einkennisbúningi.
M. 7-