Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1926, Blaðsíða 73
IÐUNN
Alþjóðabandalagið.
151
Ópíum. Meðal alþjóðamála á starfskrá Alþjóðabanda-
lagsins er eftirlit með verslun og framleiðslu á ópíum
(svo og morfin og kokain) eitt hið merkasta. Banda-
lagið hefir látið rannsaka framleiðslu á ópíum og eins
hitt, hve mikið hvert land þurfi af þessu eitri í þeim
tilgangi, að ekki verði framleitt meira en við þurfi til
lækninga og vísindalegrar starfsemi. Rannsóknarstarf-
semi þessi var komin svo langt á leið, að Alþjóða-
bandalagið gat boðað til fundar um þetta. Því miður
varð lítill árangur af fundinum, enda er málið þannig
vaxið, að ókleyft virðist að hafa nákvæmt eftirlit með
framleiðslunni og sporna við launsölu. Víða í Asíu er
leyft að reykja ópíum, en hitt veldur meiri vandræðum,
að ómögulegt virðist að koma í veg fyrir nú sem stend-
ur, að ópíum sé smyglað út úr Kína. Enn er eitt atriði
sem seinka mun málinu, sem sje hagnaður sá, er sum
ríki hafa af opíumframleiðslunni. Alþjóðabandalagið mun
þó ekki leggja árar í bát á þessu sviði.
Umsjónarstarfsemi. Saarhjeraðið (íbúatala 750,000)
er undir yfirstjórn Alþjóðabandalagsins. Samkvæmt Ver-
salafriðinum fengu Frakkar notarjett um 15 ára skeið
yfir kolanámunum í hjeraðinu sem einskonar uppbót
fyrir kolanámur þær, sem Þjóðverjar eyðilögðu í Norð-
ur-Frakklandi. Að þessum 15 árum liðnum er Þjóðverj-
um heimilt að kaupa námurnar og um leið skal fara
fram þjóðaratkvæði um það, hvort íbúarnir kjósi að
sameinast Frökkum eða Þjóðverjum, eða halda því fyrir-
komulagi áfram, sem nú |er. Hjeraðinu stjórna 5 menn,
einn er Frakki (til þessa formaður nefndarinnar), annar
hjeraðsbúi, en hinir þrír frá öðrum ríkjum. Þjóðverjum
er þungt í brjósti út af fyrirkomulaginu öllu. — Frakkar
halda þar herlið, og á sínum tíma mun þjóðaratkvæða-
greiðslan glæða gamalt hatur milli Frakka og Þjóðverja.