Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1926, Page 29

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1926, Page 29
IÐUNN Öfl og ábyrgð. 107 það fyllir eyðimörk einverunnar vofum, og syndaranum finst hann vera umkringdur af sýnum athafna sinna, sýnum, er stöðugt koma nýjar og nýjar. Og ekki er öllu lokið þar með; hann sér þá menn, er hann hefir breytt illa við, og hann skelfist. Þurfi sál nokkuru sinni að halda á frelsara og lausnara, þá er það, þegar hugsjónaaflið og kærleikslausar endurminningar eru alt af að leiða fram eigingirni-athafnir kærleiksvana Iífs“. — [Bréf Júlíu.) Eitt þeirra vitsmunaafla, sem tjá sig vera framliðna menn, lýsir reynslu sinni meðal annars á þessa Ieið: 2. „Ýmis konar smásmuglegur ódrengskapur í fari mínu, dimmu stundirnar, sem ég hafði talið öruggar fyrir ljósinu, halurs- og afbrýðsemi- og öfundarhugsanirnar, sjálfbirgingskapurinn, sem nú gerði sjálfan mig svo hlægilegan í mínum eigin augum — öll hin átumeinskenda, syndsamlega starfsemi hugarins var nú al- gerlega augljós, hvar sem hún hafði fram farið. Afsakanir sjálfs mín eða þeirra, sem áður höfðu verið vinir mínir, urðu nú að bjánalegum og barnalegum lygum. Eg heyrði vængjaþyt sannleikans og fann til hinnar ógurlegu návistar hans. Eg stóð með krepta hnefana, þangað til neglurnar voru komnar inn í lóíana, og eg fann kaldan svitann renna niður eftir andlitinu á mér. Að lokum gat eg alls ekki staðið andspænis mönnunum, og eg fleygði mér á legubekk, og huldi andlitið í sessunum. En eg gat ekki umflúið þessar fyrirdæmandi myndir, Þær voru í huga sjálfs mín, og þær héldu stöðugt áfram; einhver áhrif frá rannsóknurum mínum framleiddu þær, og eg var þeim bálreiður. Svo yfirkominn var eg af blygðun og bræði, að eg hefði viljað fara að dæmi Samsonar og velta stoðunum um og láta húsið falla ofan á okkar, ef eg hefði með því tortímt sjálfum mér og þessum vottum. Þegar þján- ingarnar reka oss út í örvænting á jörðinni, er jafnan þessi huggun eftir: „Einhvern tíman fæ eg að deyja og losna við þetta alt saman;“ en nú vissi eg, að enginn dauði var til og getur aldrei orðið“. — [Behind the Veil.[ 3. „Þig kann að hrylla við því, en satt er það engu að síður, að stundum er sálin, sem yfirgefið hefir likamann, í myrkrinu fyrir utan, og sér þar ekkert né finnur annað en hræðilega glötun, auðn, sem þjáir hana og er Iýst sem helvíti. Og helvíti er engin skröksaga. Og helvíti bíður þeirra, sem hafa fyrirbúið sér það, jafn-áreiðanlega eins og himnaríki bíður þeirra, sem hafa fyrir-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.