Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1926, Qupperneq 31

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1926, Qupperneq 31
IÐUNN Öfl og ábyrgð. 109 gegn alheimsviljanum leiðir eingöngu til vansælu. Og að lokum fer svo, að lunderni syndarans breytist í þá átt, að alt annað verður óhugsandi en að haga sér samkvæmt þeim vilja. Eg minnist þess ekki að hafa séð fullyrðing- ar um, að þessar málalyktir séu að sjálfsögðu undan- tekningarlausar. Alt af er viðurkent, að þekkingin sé takmörkuð, líka í öðrum heimi. En von er stöðugt látin uppi um það, að einhverntíma snúi allir við. Hitt atriðið er þetta: Þó að vér höfum fengið vit- neskju um það, að syndsamlegt atferli manna hér í heimi leiði til voðalegrar vansælu annars heims, þá skulum vér varast að dæma aðra menn. Um þetta er m. a. svo að orði kveðið í bréfum Júlíu: „Við lítum á hlutina, eins og þeir eru, eltki eftir þeim ein- kennismiðum, sem á þá eru settir. Og furðulegt er það sumt, sem fyrir okkur ber. Matið á körlum og konum umhverfist svo frámunalega . . . Eins og fyrsta atriðið í erindi mínu er þetta: Quð er kærleikur . . . eins verður annað atriðið að vera þetta: Dæmið ekki, dæmið ekki. Því að þið sjáið ekki, þið skiljið ekki. Þið eruð allir eins og börn í myrkri, sem eru að gizka á liti. Þið sjáið ekki litinn, og samt treystið þið ykkur til að kveða upp dóma. Dæmið ekki, þangað til þið hafið að minsta kosti séð manninn eins og liann er. Oft er það bezt, er ykkur virðist verst. Stundum er það einna verst, sem virðist bezt. Hvatirnar eru ekki alt, en mikilsverðar eru þær — svo mikilsverðar, að þeir, sem ekki sjá þær, geta ekki dæmt að fullu“. Eg hygg, að þeir, sem athuga það, sem sagt er hér að framan, en einkum þeir, sem kynna sér ítarlega þá vitneskju, sem hér er um að tefla, muni verða mér sam- mála um það, að sízt er ástæða til þess fyrir S. N. að finna einhyggjunni það til foráttu, að ábyrgðina, áhættu- hugsunina vanti í hana. Engir eru ákveðnari né ein- dregnari einhyggjumenn en þeir, sem sannfærst hafa um samband við framliðna menn. Hvað sem þeim kann að öðru leyti að bera á milli, þá eru þeir allir fráhverfir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.