Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1926, Side 84

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1926, Side 84
162 Þórir Bergsson: Fífillinn. ÍÐUNN Læknirinn stóð við gluggann, hann hafði þá, rétt áð- an, orðið að segja það, eins og það var, — þar var engin von sjáanleg. Ekkert sjáanlegt eftir — nema eitt —. Og konan, móðir hennar kraup við rúmið og hélt í litlu hendina. Sorglegt var það, þótt sólin skini inn um gluggann, fyrsta lóan væri að koma, og fyrsti fífillinn væri sprung- inn út. — En þá kom einhver við hurðina. Læknirinn opnaði. Úti fyrir stóð Sveinki litli í Hvammi, en það var kot rétt fyrir utan túnið á Felli. Sveinki litli var ekki vel hreinn, en það gerði ekki mikið til eins og þá stóð á. Hann var mórauður í framan, en baugar kring um augun, og lækir niður kinnarnar, því hann hafði verið að skæla. Og hvergi var hann hreinn, einhverntíma hefðu þau, hjónin á Felli, sagt honum að snauta út, og þurka af sér skítinn. En hann var með dálítið í hendinni, sem var lykill að þessu sorgar-herbergi. Og þegar litla stúlkan, sem var að leggja af stað í langferðina miklu, sá það, brosti hún, brosti ofurlítið. En það sem Sveinki litli í Hvammi kom með, það var litli fífillinn, aumingja litli fífillinn, sem varð fyrstur til að springa út það vorið — og fyrstur til að deyja. Þórir Bergsson.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.