Kirkjuritið - 01.07.1935, Blaðsíða 83
Kirk.juritiS.
Erlendar bækur.
331
til Guðs og ósk henni til handa, að Drottinn huggi og
styrki lijarta hennar i samfélagi sínu.
Vertu sæll,
vinur og' hróðir.
Guð oss gefi
af gæzku sinni
heilum að hittast
í himnaríki,
þar sem aldrei skilja
ástvinir Drottins.
Hafðu þökk
fyrir lieilan vilja,
ódeilt hjarta
og elsku þína.
„Drottinn gaf,
Drottinn tók.
Heiður og lof
sé Herrans nafni“.
Magnús Runólfssoh.
ERLENDAR BÆKUR
Emil Brunner: Gudsordet og Verden. Med Forord af dr. theol.
H. Fuglsang-Damgaard. — De Unges Forlag 1933.
Það er talið vafalaust, að dr. theol. E. Brunner, prófessor i
Ziirich, sé fremstur meðal „dialektisku“ guðfræðinganna, að þvi
er samstæðilegu guðfræðina snertir.
Karl Barth er hinn mikli brautryðjandi, sem heggiir hlífðar-
laust bæði til hægri og vinstri og hirðir um það eitt, að brautin
liggi beint að settu marki. Köllun Iians er skýr og ákveðin og
ábyrgð þeirrar köllunar hvílir þungt á samvizku hans. Þess
vegna er hann svo hiklaus — og svo vægðarlaus. Heilagur eldur
brennur honum i brjósti, andi spámannanna stjórnar lífi hans.
Þess vegna er í hans augum aðeins eitt nauðsynlegt, og alt annað
verður að víkja fyrir því. Með alveg einstæðum skarpleika tekur
hann öll „kerfi“, sem mannsandinn hefir verið að dunda við að
búa sér til, og sundurlimar þau lið fyrir lið — og fleygir mestu af
því út á haug. Alt er rannsakað frá „dialektisku“ opinberunar-
sjónarmiði. Öll trúarleg og andleg þoka er honum viðurstygð. Og
þar virðist mér Barth sýna mesta karlmensku og djörfung, að
hann þorir að berjast við þokuna. Hann ræðst hiklaust á liana
og „analyserar" hana: Svona! Þarna hafið þið hana, þetta er
efnið i henni! Frá „dialektisku" sjónarmiði er gildi hennar þetta.
Og þar með er það mál úr sögunni.
Brunner er hins vegar hægari. Hann er djúpur og skarpur, eins
og Barth, en hugsun lians er samfeldari, sléttari og því kerfis-