Kirkjuritið - 01.07.1935, Blaðsíða 67
Kirkjuritið.
Kirkjuvígsla.
315
Biblíufélags-
fundur
var haldinn í sambandi við prestastefn-
una. Var þar nokkuð rætt um framtíðar-
starfsemi félagsins að útbreiðslu Biblí-
unnar, einnig hvatti biskup presta til að kaupa „Apokrýfar
bækur Gamla-testamentisins“, sem komu út í nýrri þýðingu og
vandaðri útgáfu árið 1931 á kostnað Hins íslenzka biblíufélags.
. Tvö erindi voru flutt í Dómkirkjunni i
r sambandi við synodus. Annað þeirra
erindi. flutti Ásmundur Guðmundsson prófessor:
Kristur og þjóðlífiff“. Var því útvarpað. — Hitt flutti séra Ósk-
ár J. Þorláksson prófastur, og nefndi hann það: ,,Persóna Jesii
Krists frá sjónarmiði Mitimagufffræöinnar".
Eining og samhugur rikti á þessari fjölmennu prestastefnu,
enda er nú um það barist, hvort afskifti kirkjunnar til kristi-
legra áhrifa á þjóðlíf vort eigi að aukast og eflast, eða jíjóðin í
framtíðinni eigi að stefna að þvi að losa sig sem mest undan
áhrifum kirkju og kristindóms.
S. P. S.
Kirkjuvígsla í Garpsdal.
Trínitatis-sunnudag 16. júní fór fram vigsla nýrrar kirkju i
Garpsdal að viðstöddu meira fjölmenni en hin nýja kirkja gat
rúmað. Biskup framkvæmdi vígsluna, sem fór fram eftir nýju
helgisiðabókinni. Við vígsluna aðstoðuðu þeir prófastarnir séra
Ásgeir Ásgeirsson í Hvammi og séra Jón Brandsson í Kolla-
fjarðarnesi, og prestarnir séra Jón Þorvaldsson á Stað á Reykja-
nesi og séra Ólafur Ólafsson á Kvennabrekku. 1 guðsþjónustunni
á eftir vigslu prédikaði séra Ólafur Ólafsson, en séra Ásgeir
fermdi nokkur ungmenni. I.oks fór fram altarisganga og þjón-
aði séra Jón Brandsson fyrir altari. Fór guðsþjónustan öll ágæt-
Iega fram og var hin hátíðlegasta.
Hin nýja Garpsdalskirkja er mjög vandað kirkjuhús úr timbri,
en ÖIl járnklædd að utan. Vegna erfiðleika á að ná í steypu-
efni varð að hverfa frá því að byggja hér steinsteypta kirkju.
Kirkjan er gjörð samkvæmt teikningu húsameistara rikisins,
með háum turni upp af forkirkju. Rúmar hún i sætum alt að
100 manns, en 205 fullorðnir voru taldir út úr kirkjunni vigslu-
daginn. Kirkjan er öll raflýst og prýðilega máluð að innan.
Kaupfélagsstjóri Jón Ólafsson í Króksfjarðarnesi hefir staðið
fyrir byggingu kirkjunnar og yfir altari er prýðileg altaristafla,
máluð af Brynjólfi listmálara Þórðarsyni, en gefin kirkjunni af
Jóni kaupfélagsstjóra til minningar um Iátna eiginkonu hans.