Kirkjuritið - 01.10.1939, Page 6

Kirkjuritið - 01.10.1939, Page 6
292 Ásmundur Guðmundsson: Október. valda, þarf að rísa máttur, meiri og æðri en alt annað á jörðu, máttur frá sálum biðjandi manna um allan hnött- inn. Guð stöðvar ekki stríð, meðan mennirnir vilja það sjálfir, það er afleiðing af frjálsræði viljans, sem liann hefir gefið þeim. En þegar friðarviljinn eflist með mönn- unum, þegar bænir um hræðralag og kærleika stíga upp lil Guðs, þá heyrir hann þær og sendir kraft til starfa í lífi þeirra. Þessvegna er mcira vert um bænir en áfellisdóma yfir þeim, sem stríðinu valda. Yið bænir opnast augu mannanna, svo að þeir sjá Guð.í anda og skilja, að hahs verður sigurinn að lokum og máttur lians er svo mikilf i veikum mönnum, að spádómsorðin munu rætast: „Hann mun dæma meðal heiðingjanna og skera úr málum margra þjóða. Og þær munu smíða plógjárn úr sverðum sínuin og sniðla úr spjótum sínum. Engin þjóð skal sverð reiða að annari þjóð, og ekki skulu þær lemja sér hernað framar.“ (Jes. 2,4.). Við hænir opnasl vegurinn fyrir anda Guðs til þess að leiða nýja hvitasunnu yfir jörðina og knýja mennina til þess að falla að fótum frelsarans upprisna, sem þeir hafa krossfest. Við hænir kemur Guðs ríki á jörðu. Og spyrji einhver: Ilvað munar um mínar bænir, eða minnar litlu þjóðar, þá er því að svara, að engu þokar áleiðis, ef allir liugsa, að á sama standi um þá, og liafast ekkert að, en við það, að liver einstaklingur gjörir skyldu sína í þessum efnum, og hver þjóð, verður sigrinum og markinu náð: „Sælu njótandi, sverðin brjótandi faðmist fjarlægir lýðir“. Leggjum þá örugg á áfangann erfiða, sem framundan er. Látum stríðstímana verða oss tíma sjálfsprófunar, aft- urhvarfs og bæna. Bregðumst vel við hverri viturlegi'i og liollri ráðstöfun, sem gjörð verður fyrir þjóðarhaginn. Sýnum þolgæði og sjálfsafneitun í smáu og stóru, efluni

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.