Kirkjuritið - 01.10.1939, Blaðsíða 38

Kirkjuritið - 01.10.1939, Blaðsíða 38
324 M. G.: Hvaft á þjónninn að gera? Október. koma til drottins. Engin hvíld, heldur brennandi áhugi og ákafi, sem öllu fórnar í starfinu fyrir drottin. Og drottinn gefur anda sinn og leggur „eld í hjörtun og lieilaga glóð“. Kristnu vinir! Verum brennandi i andanum, síauðug i verki drottins. En gætum oss samt fyrir einni freistingu, sem vill ásækja oss, er vér erum stödd í þjónustu drottins, freistingu, sem því meir ásækir, eftir því sem ákafinn og áhuginn vex. Þeirri freistingu að verða sjálf sár eða reið, er vonhrigðin mæta oss, er mótspyrnan gegn hoð- skapum eykst, er ofsóknir, illmæli og tortryggni verða á vegi vorum. Gætum þess vel, að þjónninn í guðspjallinu varð ekki reiður. Það er föður vors, almáttugs húsbónda vors að verða reiður vegna vantrúar og vanþakklætis mannanna. Það er liann, sem sagði orðin óttalegu: „Enginn af þeim, sem ])oðnir voru, skal smakka kvöldmáltíð mína“. Þjónninn gaf engan úrskurð; aðeins herrann sjálfur. Gætum oss því, í droltins nafni, að dómfella engan, sem ekki vill koma, sem ekki vill eiga samleið með oss. Ef vér erum ekki nógu sterk í kærleika til j)ess að þola móðganir og aðkall heimsins, þá er svo hætt við því, að vér hrindum öðrum frá Guði i stað þess að kalla á menn til hans. Ó, Guð, gef oss þá náð, að vér stöndum aldrei í vegi fyrir neinum þeim, er þiggja vill náðartilboð þitt. En þó að ég hiðji Guð af hjarta að gefa oss það, að vér aldrei með kulda eða dómum hrindum neinum frá að koma, þá megum vér samt ekki þegja um alvöruna miklu: „Enginn af þeim, sem boðnir vorn, skal smakka kvöld- máltið mína“. Það er skylda þjónsins að vara við hættunni, engu síður en lýsa dýrðinni. Gleymum því eigi, þótt nútímamenn vilji helzt aðeins um dýrð heyra, en um enga hættu né alvöru. Alvaran er mikil. Vörum við hættunni. Ekki með sakfell- ingu og dómum, heldur með kærleiksfullri áminningu og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.