Kirkjuritið - 01.10.1939, Blaðsíða 55
Kirkjuritið.
Innlendar fréttir.
341
armönnum hefði þótt miður að missa kirkju sína. Ragnar hygði
kirkjuna sjálfur, og mun eiga flest handtökin í smíði hennar, þótt
aðrir heimamenn hafi að sjálfsögðu ekki látið sitt eftir liggja,
einkum Guðmundur bóndi, faðir Ragnars.
Þeir feðgar hafa numið smíðar af sjálfum sér, sem og aðrar
góðar mentir, sem þeir eru kunnir fyrir af þeim, er þá þekkja.
Rn fagurlega er verkið af hendi leyst og verður ekki séð, að það
hefði betur mátt takast með lærðum smiðum.
„En hver borgar svo efnivið ög vinnulaun?“ væri ástæða til að
spyrja. Ég fékk að vita hjá Ragnari, að til kirkjubyggingarinnar
hefði fengist lán úr hinum almenna kirkjusjóði, er nam 500 kr.
Annað svar fékk ég ekki hjá Ragnari, nema ef í j)ví fólst frekara
svar, að ofurveikt bros læddist um þreklegt og veðurbarið andlit
hans. En svo mikið er víst, að önnur sóknarbörn hafa ekki haft
nein útgjöld af verkinu, og að kirkjan sjálf á nú tiðlega 550 kr.
inneign í sjóði, en átli áður en smíði hófst um 050 kr.
En auk þess sem kirkjan er nú alveg nýreist og fagurmálað liús,
hefir kirkjugarðurinn verið stækkaður út í túnið, og umhverfis
hann er komin snyrtileg trégirðing, alveg ný, girt með virneti.
Þegar ég frétti, að1 verkinu væri lokið, hraðaði ég för minni til
Berufjarðar. Ég reyndi að taka þétt i hönd Ragnars, því að ég
þóttist vita með vissu, að hún átti mestu þakkirnar fyrir jjessa
áhrifaríku bænagerð „í leyndum". Mér fanst einnig, að ég væri
að þakka honum fyrir j)jóðarinnar hönd fyrir laessa sérstæðu
kirkjubyggingu, sem er talandi vottur um, að enn gerast íslend-
ingasögur.
„Áttu ekki mynd af þér“, spurði ég Ragnar.
„Ég hefi ekki enn verið afmyndaður", var svarið.
En það væri líka erfitt verk, því að Ragnar er myndarmaður
að vallarsýn, þreklegur og svipmikill, líkt og íslenzku fjöllin, ís-
lenzkan skín út úr hverjum drætti hans, íslenzkan, sem gerir sögu
þjóðarinnar fagra og merka.
Pétur J. Oddsson, Djúpavogi.
Pétur Magnússon cand. theol. frá Vallanesi
Befir nú fengið veitingu fyrir Vallanesprestakalli í Suður-Múla-
Prófastsdæmi, að undangenginni kosningu safnaðanna. Hann
var vígður til prests i Dómkirkjunni sunnudaginn 24. sept.
Séra Jón Jakobsson frá Bíldudal
er nýkoininn heim úr utanför sinni. Hann dvaldi lengst í Skot-
inndi, 4 mánuði alls, í Edinborg og Glasgow. Þaðan fór hann til