Kirkjuritið - 01.10.1939, Page 16

Kirkjuritið - 01.10.1939, Page 16
302 Árni Sigurðsson: Október. er alveg eins og allar hinar mannssálirnar.“ Hún ympraði ekki einu sinni á því með einu orði, til hvers henni mundi auðnast að nota valdið. Þessi snildarlega dæmisaga eða ævintýri varpar björtu Ijósi yfir efni vort. Þegar mennirnir girnast vald, metorð umfram alt, gjöra þeir sér í raun og veru enga grein fyrir, live mikils eða lítils virði þetta er frá æðsta sjónarmiði. Og því síður gera þeir sér grein fyrir því, til hvers góðs megi nota valdið. Aðeins að öðlast það, njóta þess og láta svo á þvi kenna. Hætlan, sem mannkynið nú er statt í, er fyrst og fremst sprottin frá mönnum, sem girnst hafa vald umfram alt, en ekki gætt þess, til hvers beri að nota valdið, og hvaða meginregla eða lögmál eigi þar að ráða, mönn- um, sem vildu verða miklir, dýrðlegir með mönnum, en skildu ekki, hvað það er að vera mikill í ríki Krists, eða liirtu ekki um að vera það, þótli það ekki eftirsóknarvert. Þeim fór eins og sálinni i ævintýrinu, sem vildi ekki þiggja kærleikann til mannanna, af því að liann hatði óþægindi í för með sér, en þáði fagnandi valdið ytu' mönnunum. Það er augljóst, hvað Jesús vill í þessu efni. Hann segti það skýrum orðum: „Sá, sem vill verða mikill yðar a meðal, hann skal vera þjónn yðar“. Og hann sijnir Þa^ með því að henda á sitt eigið eftirdæmi: „Því að manns- sonurinn er ekki kominn til að láta þjóna sér, heldur ti* þess að þjóna, og til þess að láta líf sitt tii lausnargjalds fyrir marga.“ Það sem gjörir manninn mikinn í ríki Krists< mikinn fyrir Guði, er kærleikurinn, sem með honum hý'- Hann er að sama skapi mikill sem liann er ríkur af kær- leika, því hugarfari, sem Kristur lýsti t. d. í dæmisögunm um miskunnsama Samverjann, og Páll postuli í 13. kap- 1. Korintubréfs. Sá er í sannleika mikill, sem á þá ÞrJ sterkasta, eins og skáldið orðaði það, að „fá gert alla menn vitra og góða“, sá sem hugsar sínar hugsanir fyrir aðra menn, elskar livern mann eins og sjálfan sig, hve vondm og vesall sem er, og vill gefa mönnunum í kærleika a >

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.