Kirkjuritið - 01.10.1939, Side 30
.‘Hfi R. B.: Afmæli Fyrsta lúterska safnaðar.
Októbcr.
bil forseta safnaðarins og hinn örlátasta stuðningsniann
lians að fjárframlögum eigi síður en að hollum ráðum og
stuðningi við öll nytjamál safnaðarins.
()g mér virðist það einmitt vera á þessu sviði, i leik-
mannastarfseminni innan og utan safnaðanna, sem is-
lenzk kirkja heima fyrir getur tekið sér íslenzka safnaðar-
starfsemi vestan liafs til fyrirmyndar; og það er í inin-
um augum blátt áfram vorboði í kirkjulegu starfi á ís-
landi, að leikmenn þarlendis taka nú vaxandi jiátt í þeim
málum.
Loks má geta þess, að forysta starfseminnar í Fyrsla
lúterska söfnuði er nú eigi að litlu leyti í höndum mið-
aldra og yngri kynslóðarinnar; messur fara fram á ensku
að morgninum, en á islenzku að kvöldinu; sunnudaga-
skólakenslan fer liinsvegar öll fram á ensku.
Þegnhollusta safnaðarfólksins gagnvarl kjörlandinu lýsn-
sér Ijósl i ]iví, að á skrá, er geymir nöfn þeirra er gengu
í herþjónustu á stríðsárunum úr Fyrsta lúterska söfnuði,
standa 117 nöfn. Tengsl safnaðarins við móðurkirkjuna
íslenzku og andlegar íslenzkar erfðir eru þó enn slungm
mörgum þáttum og djúpstæðum.
Richard Beck.
HAUST-STEF.
í hlíðum óðum rökkvar. Ég haustsins kenni mörk:
Á hæðir snjór er fallinn og sölnuð rós og björk.
En enginn sá mun hugast, þótt ógni vetrar þraut.
sem eldinn helga geymir og þráir sannleiks skaut.
Haukur Eyjólfssou■