Kirkjuritið - 01.10.1939, Page 32

Kirkjuritið - 01.10.1939, Page 32
318 Magnús Guðmundsson: Október. hafið gengið á hönd. Af sjálfum frelsaranum erum vér vígð til að vera þjónar drottins og boðberar hans. Vér skulum þess vegna verja þessari helgistundu til þess að virða fyrir oss efnið: „Hvað á þjónninn að gera“, samkvæmt þvi, sem hið heilaga guðspjall dagsins lýsir hlutverki lians. En þig, góði Guðs andi, hiðjum vér, leiddu oss i allan sannleika, svo að vér fáum skilið, hversu dýrlegt og mikil- vægt hlutverk oss er af drottni falið, er hann fól oss að vera þjónar og boðberar sínir. „Og hann sendi út þjón sinn til að segja: Komið, því alt er þegar tilbúið“. Hvað átti þjónninn að gera? Hann átti að hlýða strax og skila rétt. Það stendur ekki berurn orðum í lnnu heilaga guðspjalli, að þjónninn hafi hlýtt samstundis. En vér sjáum það af sambandinu, að Jesús gengur út frá því sem alveg sjálf- sögðu, að þjónninn hlýði strax, því að næsta vers seg'h' einmitt frá því, að þjónninn er farinn af stað, með skila- hoð húsbónda síns. Þetta sýnir oss, að fyrsta krafan, sem drottinn gjörir til þjóna sinna, er að þeir hlýði lionum alveg skilyrðislaust. Gefi sig algjörlega undir vald og vilja hans. Þá menn eina, sem gefa sig algjörlega undir vilja Guðs, getur Guð nolað sem þjóna sína. Þeir einir eru færir um að hlýðnast þeirri kröfu, að skila rétt. Skila boðskapnum eins og húsbóndi þeirra hefir sagt þeim að skila. Ég minnist þess, er ég sem drengur var sendur með skilaboð á næstu bæi, frá pabba eða mömmu, þá var ég altaf að liafa orðin yfir á leiðinni, til þess að vera viss um að skila orðunum, eins og mér var sagt að skila þeim. Og drottinn Guð leggur það fyrir Jijóna sína, að þeu’ skili þvi rétt, sem þeir eiga að skila. Þjónninn, sem hið heilaga guðspjall talar um, átti að fara með þessi orð H"1 húsbónda sínum: „Komið, því alt er þegar tilbúið“. Með orð frá Guði eru þjónar Guðs sendir út. Orð frá sínum

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.