Kirkjuritið - 01.10.1939, Side 33

Kirkjuritið - 01.10.1939, Side 33
Kirkjuritið. 319 íívað á þjónninn að gera? liimneska húsbónda. Og þetta orð Guðs er oss gefið og geymt í Ileilagri ritningu. Guðs orði í Heilagri ritningu má þjónninn ekki breyta. Hann má ekki lagfæra boðskapinn eftir þvi, sem hann heldur að bezt eigi við í það og það skiftið eftir tíð eða tíma. Þjónninn á að boða boðskapinn eins og hann er. Guðs orði eigum vér að hlýða. Og eins og ég rifjaði upp fvrir mér orðsendingarnar til þess að geta skilað rétt, svo eigum vér að rifja upp á lífsgöngu vorri skilahoðin, lesa Guðs orð daglega og oft á dag. Þá getum vér flutt mönnum boðskapinn frá Guði réttan, eins og Guðs orð liefir fyrir oss lagt að flytja liann. Og minnumst þess, að ef vér flytjum aðeins þann boðskap, sem Guðs orð býður oss að- flytja, þá ber drottinn sjálfur áhyrgðina á hoðskapnum, en vér ekki. En ábyrgðin hvílir á oss, ef vér breytum til, ef vér förum ekki eftir Guðs orði, og sú áhyrgð er svo þung, áð oss er um megn að bera hana. Vér erum ekki lengur þjónar Guðs, ef vér ekki hlýðum skilyrðislaust, og skilum eins og oss var sagt að skila, jafnvel þótt vér, með vorri takmörkuðu skynsemi, skiljum ekki alt hið dýrlega í þeim lioðskap, er oss er falið að Hytja. Guð skilur. Oss er nóg að vita það. Hann veit, af hverju hann lét þetta vera svona en ekki öðruvísi. Hvað kemur það þjónunum við, livaða rétti húshóndinn framreiðir, og hvernig iiann framreiðir þá. Húsbóndinn ræður rettunum. Og Guð ræður, upp á hvað hann býður oss mönnunum til kvöldmáltíðar sinnar. Og hvað er það þá, sem hann liefir að hjóða? Alt er tilbúið. Hann býður alt, sem gildi hefir. í þessum °rðuin: ,vAlt er þegar tilbúið“, felst öll hjálpræðissagan, * rá því fyrst að fyrirlieitin voru gefin, um frelsara, og all hl þess, að fyrirheitin urðu uppfylt í Guðs eigin eingetna syui, frelsara vorum og drottni Jesú Kristi. Alt er tilbúið. Réltirnir, sem fram eru reiddir, eru dá- samlegir. Jesús Kristur. Hann er gefinn út fyrir oss. Jesús heíii- gefið sinn heilaga líkama og blóð.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.