Kirkjuritið - 01.10.1939, Page 35

Kirkjuritið - 01.10.1939, Page 35
Kirkjuritið. Hvað á þjónninn að gera? 321 Hvað er dásamlegra til en alt þetta: Fyrirgefning synda, heilagur þróttur, sæta og hamingja þessa lífs og annars. Já, ekkert er dýrlegra til. Með þennan boðskap um Krist, um frelsarann, sem alt þetta gefur, og alt, sem sérliver mannsál þráir og þarfnast, erum vér send út lil mannanna sem þjónar Guðs. Og ef vér erum að þvi spurð, hvaða skilyrði mennirnir þurfi að uppfylla til að öðlast alt þetta, þá svörum vér að- eins með orðum guðspjallsins: „Komið“. Komið til Krists. Eina skilyrðið er að koma, eins og maður er, þiggja boðið. Hverjum þeim, er þiggur boðið, veitir Guð alt i Jesú Ivristi. Vér erum því send til að segja mönnunum að koma. Koma þangað sem þeim er veitt alt hið bezta. Vér erum send til allra með þann dýrlegasta boðskap, sem unt er öðrum að flytja. Vér, sem í mörg ár höfum boðað þennan boðskap, finnum altaf betur og betur, bve dýrlegum boð- skap oss er trúað fyrir. I hvert sinn er vér lesum Guðs lieilaga, opinberaða orð, finnum vér þar eitthvað nýtt og háleitt, sem vér ekki höfðum veitt atliygli áður. — Þeim roun dásamlegra er það, að mega flytja fagnaðarboð- skapinn. En — en, þeim mun meiri eru líka vonbrigðin, sem þjónninn fær, þegar allir taka að afsaka sig og vilja ekki koma til kveldmáltíðar Guðs og þiggja náðina í Jesú Kristi. Ný vonbrigði á hverjum degi. — Og vér spyrjum oss: Hvers vegna gerir fólkið þetta? Hvernig getur það neilað að þiggja það bezta, þegar skilyrðið er aðeins eitt: Vð koraa? Hví kemur fólkið ekki til Krists? — Er það niér að kenna? Skila ég svona illa þvi, sem mér var falið að skila? Slíkar samvizkuspurningar vakna oft i sálu þjónsins. Það getur verið, að það sé oss að kenna, en það þarf °kki að vera af þeim ástæðum. — Guðspiallið segir oss, Jð boðsgestirnir hafi allir tekið að afsaka sig og neitað að koma. Jesús varð sjálfur að þola afsakanir og heyra neit- lln fólksins. Er þá nokkur furða, þótt vér verðum oft fyrir

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.