Kirkjuritið - 01.10.1939, Side 37

Kirkjuritið - 01.10.1939, Side 37
Kirkjuritið. Hvað á þjónninn að gera ? 323 vinnast. Hann bendir oss á, að þjónsstarfið er ekki árang- urslaust. Margir liafa þegið drottins boð. Og drottinn segir: „Far þú skjótlega út á götur og stræti borgarinnar, og fær þú inn hingað fátæka, vanheila, halta og blinda.“ Hann segir, far þú til smælingjanna, til olnbogabarna þjóðfélagsins, til þeirra, sem bágt eiga, til sjúklinganna, syrgjendanna einstæðinganna, og elliþreyttu gamalmenn- anna. Og það er dásamlegt til margra slíkra manna að koma. Þjónninn fær ekki altaf eintóm vonbrigði. Hann fær margar dýrlegar hvatningarstundir. Hann sér menn taka boðinu. Sér menn þiggja náðina í Jesú Kristi, sér menn örugga, lieila sem Guðs börn við Guðs heilaga föðurhjarta. Hann sér ljómann í augunum, eins og ég sá hann í augum ekkjunnar, er ég mintist á í byrjun. Ein slík stund, sem hfuð er meðal barna og unglinga, eða við dánarbeð, eða við eitthvert alvarlegt tækifæri, veitir þrek og þrótt móti hundruðum vonbrigða. — Einni sál bjarg- að. Þér finst það lítið. Nei, það er mikið. Ilvers virði er ein sál? „Það mun verða meiri gleði á himnurn yfir einum syndara, sem bætir ráð sitt, heldur en yfir 99, sem ekki þurfa iðrunar við. Það eitt að sjá Ijómann í augum eins einasta barns, eins einasta manns, er þiggur boð drottins, margborgar alla fyrirhöfn þjónsins. Heyrum vér ekki gleðihljóminn í rödd þjónsins í guð- spjallinu, er liann segir: „Herra, það er gjört, sem þú hefir fyrir skipað.“ En er það þá ekki nóg að fá einn til að koma, fyrst það er svona mikils virði? Guðspjallið svarar því neitandi. Þjónninn kom aftur til herra síns fullur af gleði. En samt segir húsbóndinn: „Far þú út á þjóðveguna og að girðing- unum og þrýstu þeim til að koma.“ Þjónninn mátti ekki fá neina livild. Nei, liann varð að vinna meir en nokkuru sinni fyr. „Þrýstu“, segir húsbóndinn. Með öllum mögu- legum og hugsanlegum ráðum á að fá mennina til að

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.