Kirkjuritið - 01.10.1939, Síða 50
Októbei'.
Innlendar fréttir.
Prestafundur Hólastiftis hins forna
var haldinn á Akureyri 3.—4. sept., og sátu hann 12 prestar og
prófastar, auk Friðriks J. Rafnars vígslubiskups. Áður en fund-
urinn hófst, voru prestarnir viðstaddir þá atliöfn, er hornsteinn
var lagður að nýju kirkjunni á Akureyri, og því næst skiftu þeir
sér niður á nágrannakirkjurnar og messuðu þar og á Akureyri.
Aðalmál fundarins voru þessi: 1. Starfssvið prestsins. 2. Presta-
kallamálið. 3. Samstarf presta. Málsliefjendur voru þeir séra Guð-
brandur Björnsson prófastur, Friðrik J. Rafnar vígslubiskup og
séra Óskar Þarláksson.. Ýmsar ályktanir voru samþyktar, m. a.
að senda prestum í Ilólastifti þetta ávarp:
Fundur presta í Hólastifti liinu forna, haldinn á Akureyri dag-
ana 3. og 4. sept. 1939, sendir yður, kæri starfsbróðir, svoliljóð-
andi kveðju og ávarp:
Vér höfum meðtekið þau miklu sorgartíðindi, að hafið sé stríð
í álfu vorri. Út af þeim tiðindum vill fundurinn, í nafni hinnar
norðlenzku kirkju, brýna fyrir yður, og hverjum þjónandi presti
eftirfarandi atriði:
1. Sameinum hugina i starfi friðar og kærleika, göngum á
undan söfnuðum vorum í því að fella ekki lilutdræga dóma um
hinar stríðandi þjóðir, reynum að milda liugina og vinna að því,
að þjóð vor gæti liins ítrasta hlutleysis.
2. Vinnum samliuga að þvi að taka með fullri djörfung og still-
ingu hverju þvi, sem að höndum ber, göngum á undan söfnuðum
vorum í einföldu liferni, temjum sjálfum oss og öðrum sjálfsaf-
neitun og sparneytni á sem flestum sviðum og vinnum að því, að
enginn leitist við að ná til sín því, sem viðbúið er að þurð verði á,
meir en réttlát skifting leyfir.
3. Göngum á undan i því að liagnýta til matar og klæða þau
gæði, sem land vort á í fórum sínum, og minnuni söfnuði vora á,
að hollur er heimafenginn baggi.
4. Eignumst, allir prestar í Hólastifti hinu forna, hljóða bæn-
arstund, þar sem Guð í Jesú nafni sé beðinn að líkna stríðandi
mannkyni, og i því skyni séu kirkjur vorar opnar einhverja á-
kveðna slund hvers sunnudags, þótt ekki sé messað, ef einhverir
vildu þangað leita.
5. Höfum forgöngu að þvi, að hafin sé liverskyns líknarstarfsenri
heima í söfnuðunum til lijálpar þeim, sem eiga bágast, svo sem
börnum og gamalmennum í hinum stríðandi löndum.