Kirkjuritið - 01.10.1943, Blaðsíða 6

Kirkjuritið - 01.10.1943, Blaðsíða 6
268 Prestastefnan 1943. Október sunnudagaskólanefndar. — Ennfremur voru rædd launa- mál presta, fundarsköp prestastefnunnar o. fl. Allmargar tillögur voru samþykktar, og er þeirra getið á öðrum stað í blaðinu. I lok prestastefnunnar ávarpaði biskup prestana, þakk- aði ágætt samstarf og árnaði þeim og kirkjunni allra heilla. Lauk síðan prestastefnunni með bæn í kapellu Há- skólans, en í lok bænar biskups báðu prestar sameigin- lega faðir vor og sungu sálminn Faðir andanna. Um kvöldið voru prestarnir í boði á heimili biskups- bjónanna. Sveinn Víkingur. Ávarp biskups. Synodusprestar! Kæru vinir og samverkamenn! Mér er það ánægja að bjóða yður velkomna til þess- arar prestastefnu — til þessara samfunda um beilög málefni Krists og kristninnar í landi voru. Þér komið frá margbáttuðu starfi í söfnuðum yðar, starfi, sem vissulega revnir á kraftana, sé það vel rækt og drengilega. Ferðalögin um víðáttumikil prestaköll eru erfið á Islandi, einkum að vetrarlagi og oftsinnis hafa íslenzkir prestar lagt mikið í sölurnar á slíkum ferðum, er þeir fóru til þess að rækja skyldur, sem lífsstarfið og lífsköllun þeirra lagði þeim á lierðar. Raun ber vitni um að þar var stundum miklu fórnað. Þér komið til þess að safna nýjum kröftum til framtíðarstarfs, ræða og ráða fram úr vandamálum líðandi stundar, sem vegna óvenjulegra og örlagaríkra tíma eru erfiðari en áður. Ennþá geisar styrjöld í öllum lieimi og áhrif hennar ná vissulega til vor, þótt mannfórnir liafi ekki orðið hér

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.