Kirkjuritið - 01.10.1943, Page 19

Kirkjuritið - 01.10.1943, Page 19
Kirkjuritið Prestastefnan 1943. 281 Séra Ingólfur Ástmarsson fékk veitingu fyrir Staðarprestakalli í SteingrímsfirSi í Strandaprófastsdæmi, að undangenginni lög- mætri kosningu safnaðarins, er fram fór 30. maí þ. á.‘ Séra Þorsteinn Björnsson i Árnesi hefir verið settur til að þjóna Sandaprestakalli í Dýrafiröi frá 1. júní þ. á. að telja. Prestaköllum prófastanna tveggja, er létust á liðnu ári, var þjónað af præp. lion Ólafi Magnússyni Stokkseyrarprestakalli, en Hólmaprestakalli af séra Haraldi Jónassyni prófasti á Kol- freyjustað. í sumar hafa tveir guðfræðistúdentar verið sendir út í óveitt prestaköll, eins og áður hefir verið venja til. Eru það stúdent- arnir Jón Árni Sigurðsson og Guðmundur Guðmundsson. Starfa þeir í Staðarprestakalli á Reykjanesi og Brjánslækjarprestakalli. Eins og kunnugt er liefir nokkur skortur verið á prestum undanfarin ár. Ýmsir þeir, er guðfræðipróf liafa tekið, hafa enn ekki gerzt prestar og nokkur vanliöld orðið af öðrum á- stæðum. Fráfall 5 sóknarpresta sl. ár liefir því, sem skiljanlegt er, verið ærið tilfinnanlegt einnig í þessum skilningi, enda eru sem stendur allmiklir erfiðleikar á að útvega prestlega þjónustu í sum af hinum óveittu prestaköllum. Sem dæmi um þessa erfið- leika má nefna, að sóknarpresturinn í Flatey er settur til að þjóna, auk síns eigin prestakalls, Brjánslækjarprestakalli og •Staðarprestakalli á Reykjanesi og er augljóst mál, að þar er um ofmikið verkefni að ræða fyrir einn mann. Presturinn á Stað í Steingrímsfirði verður að þjóna fyrst um sinn Árnesprestakalli sem, sérstaklega að vetrarlagi, má telja nær ókleift. En von er nú um, að starfsmönnum kirkjunnar fjölgi verulega, áður en langt um líður. Síðastliðinn vetur munu 25 guðfræðistúdentar hafa verið innritaðir í guðfræðideild Háskóla vors. Tveir þeirra hafa nýlega tekið próf og fara væntanlega út i prestsstarfið á þessu ári, og næsta ár munu 6—8 ljúka embættisprófi. Eins og nú standa sakir eru þessi prestaköll óveitt: 1. Skeggjastaðaprestakall í Norður-Múlaprófastsdæmi. 2. Hofteigsprestakall í Norður-Múlaprófastsdæmi. 3. Nesprestakall í Norðfirði i Suður-Múlaprófastsdæmi. 4. Sandfellsprestakall í Öræfum i Austur-Skaftafellsprófastsd. 5. Þingvallaprestakall í Árnesprófastsdæmi. 6. Staðarhraunsprestakall í Mýraprófastsdæmi. 7. Staðarliólsþingaprestakall í Dalaprófastsdæmi. 8. Brjánslækjarprestakail í Barðarstrandarprófastsdæmi.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.