Kirkjuritið - 01.10.1943, Blaðsíða 25
Kirkjuritið
Prestastefnan 1943.
287
Rangárvalla-, Vestur-Skaftafells-, Mýra- og Borgarfjarðarprófasts-
dæmum. Stofnaði söngmálastjóri í prófastsdæmum þessum sam-
tals 9 kirkjukóra: Ólafsvikurkirkjukór, Hellna-, Hofsóss-, Sauð-
árkróks-, Miklabæjar-, Keflavíkur-, Víkur- og Stykkishólms-
kirkjukór. Auk þess starfaði hann hjá fjórum kirkjukórum er
hann hafði áður stofnað. Borgarness-, Akraness-, Bréiðabólstað-
ar- og Hlíðarendakirkjukór. Ennfremur starfaði hann hjá 3
kirkjukórum í Reykjavik, sem stofnaðir voru af honum, vetur-
inn 1941—1942. Loks starfaði hann við organista- og barna-
kennara söngnámsskeið í Kennaraskólanum i Reykjavík sem
námsstjóri og kennari, ásamt Guðmundi Matthíassyni söngkenn-
ara maímánuð allan, svo sem liann hafði gert á sama tíma árinu
áður. Voru nemendur 13 að tölu.
Guðfræðisstúdentum, 13 að tölu, kenndi söngmálastjóri og um
þriggja mánaða skeið jafnframt því, sem hann kenndi kirkju-
kórunum 3 í Reykjavík. Þá liefir hann og unnið að útvegun sjö
organista til kirkna, sem voru organista-lausar. Fóru organistar
þessir til Bíldudalskirkju, Ólafsvíkurkirkju, Brimisvallakirkju,
Hellnákirkju, Hólskirkju í Bolungarvík, Hofskirkju við Hofsós
og Fellskirkju i Skagafjarðarprófastsdæmi.
Viðgerðarmaður kirkjuhljóðfæra, er sendur var út, gerði við
15 kirkjuhljóðfæri í Skagafjarðar-, Snæfellsness- og Suður-
Múlaprófastsdæmi.
Hljómleikar kirkjukóra að tilstuðlan söngmálastjóra voru 8,
auk þess söng einn þeirra, Neskirkjukór, í útvarp og sömuleiðis
9 einsöngvarar, er voru meðlimir kirkjukóra og nemendur Sigurð-
ar. Eins og sakir standa liggja ca. 50 beiðnir fyrir um að fá að njóta
starfs söngmálastjóra. Verður sennilega óhjákvæmilegt að vinna
að því, að fleiri söngkennarar fáist til aðstoðar söfnuðunum á
þessu sviði, því ef ekki er unnt að hafa sæmilegan söng í
kirkjunum verður erfiðara um kirkjusóknina. Enn eru 21 af
kirkjum landsins alveg organista- og söngstjóralausar, en von-
andi smárætist úr, eftir því sem lengur er starfað fyrir þessi mál.
Sálmabókarnefnd starfaði enn sameiginlega hér í Reykjavík
s.l. vetur 314 mánuð. Bætti hún þá, áður en fundir hófust, einum
manni í nefndina, samkvæmt samþykkt prestastefnunnar. Valdi
hún til þess Jón skáld Magnússon. Síðar á prestastefnunni, undir
öðrum dagskrár lið mun nánar skýrt frá starfi nefndarinnar og
fjölyrði ég því ekki um það að þessu sinni.
Prestafélag íslands, er 25 ára um þessar mundir. Hefir afmæl-
isfundur þess verið haldinn, og er Ivirkjuritið að þessu sinni
helgað minningum úr starfssögu félagsins. Um það verður ekki