Kirkjuritið - 01.10.1943, Page 29

Kirkjuritið - 01.10.1943, Page 29
Kirkjuritið Samþykktir prestastefnunnar. I. Kristileg uppeldismál. 1. Prestastefnan leggur höfuðáherzlu á að prestar vinni af enn meiri alúð að fermingarundirbúningi barna og beinir þvi til deilda Prestafélagsins að bindast samtökum í því efni, svo og um skólaheimsóknir, barnaguðsþjónustubald og um að balda við sambandi prests og barna eftir ferminguna. 2. Prestastefnan beinir þeirri ósk til guðræðideildar Háskóla íslands, að bún verji meiri tíma til verklegs náms, sérstaklega til æfinga i barnaspurningum. 3. Prestastefnan leggur áberzlu á, að framfylgt verði því á- kvæði fræðslulaganna, að kristin fræði séu ein af þrem böfuð- námsgreinum barnaskólanna, og séu kennd eigi skemur en bálfa klukkustund daglega. Jafnframt beinir prestastefnan þeirri ósk til allra barnaskóla, að þeir taki upp þá venju, sem þegar tíðk- ast i nokkrum skólum, að kennsla í kristnum fræðum fari fram fyrst að morgni og befjist með sálmversi og ritningarorðum, er geti orðið einskonar einkunnarorð dagsins. 4. Prestastefnan leggur til, að í öllum unglingaskólum lands- ins, béraðs og gagnfræðaskólum, liúsmæðraskólum, kvennaskól- um og stúdentaskólum verði varið eigi minna en einni kennslu- stund á viku i bverjum bekk til fyrirlestra og kennslu í kristn- um fræðum. 5. Prestastefnan telur rétt, að þar sem barnakennari síður vill kenna kristinfræði, feli skólanefnd í samráði við sóknar- prestinn kennsluna öðrum manni, enda greiði þá ríkissjóður þóknun fyrir kennsluna í réttu hlutfalli við þátttöku lians í launagreiðslu barnakennara. 6. Prestastefnan leggur áherzlu á að sálmalög séu kennd i skóbun landsins að jöfnu við önnur sönglög. 7. Prestastefnan skorar á ríkisstjórnina að hlutast lil um, að hvert skólabarn fái Nýja testamentið ókeypis til eignar. II. Kirkjan og útvarpið. 1. Prestastefnan skorar á útvarpsráð að blutast til um, að í lok kvöldútvarps yfir vetrarmánuðina sje jafnan útvarpað trú- arlegum hugleiðingum.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.