Kirkjuritið - 01.10.1943, Blaðsíða 31

Kirkjuritið - 01.10.1943, Blaðsíða 31
Kirkjuritið Prédikun. Eftir séra Kaj Munk. Jóhannes skírari var maður ógætinn. Hann trúði á sannleikann. Heródes konungur lifði i hórdómi. Skírarinn fór rak- leitt til lians og sagði honum að láta af þvi. Hann hætti með því lífi sínu. Og meira en það. Hann átti það á liættu að vekja uppreisn og borgarastrið. Það gat jefnvel hlotizt af, að Rómverjar neyttu færisins til þess að skipta sér af málunum, og mátti þá búast við því, að örlög allrar Gvðingaþjóðarinnar yrðu blóði drifin. Hvi þagði Jóhannes þá ekki? Það liefði verið langtum hyggilegra og nærgætnislegra. Já, skyldi það? Jóhannes var eldheitur trúmaður. Hann trúði því, að sannleikurinn væri til í því skvni, að menn segðu liann. Ýmsir gjöra sér það í hugarlund, að sannleikurinn verði lagður fyrir. Menn geta soðið hann niður, geymt hann í saltkerinu og síðan gripið til lians og notað eitt- hvað af honum, þegar vel hentar. Þeim skjátlast. Sannleikurinn verður ekki lagður fyrir til geymslu. Hann er ekki til öðruvísi en lifandi. Og liann á að birta í sömu andránni sem hann birtist. Sé það ekki gjört, deyr hann og rotnar og verður brátt til tjóns; því að hættulegastur af öllum lygum er sann- leikurinn sálaði. Jóhannes skírari var maður gæddur holdi og blóði. Hold er efni og laugar í, og blóðið kýs helzt dvöl inni í líkamanum, þar sem það er orðið hagvant. Lærisvein-

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.