Kirkjuritið - 01.10.1943, Blaðsíða 32

Kirkjuritið - 01.10.1943, Blaðsíða 32
294 Kaj Munk: Október árnir, sem unnu Jóhannesi, réðu honum til varúðar, og þeir voru ekki einir um það. Hold og blóð sjálfs hans höfðu einnig varað hann við: Heródes er þessa stund- ina voldugur maður. Hann stendur enn á hátindinum. Bíddu þangað til lýðhylli lians þver, eða liann lileypur á sig og Rómverjar gerast honum óvinveittir. Sannleik- urinn má við geymslu, hann helclur áfram að vera sann- leikur fyrir því. A rétta andartakinu getur þú stigið fram í allri spámannstign þinni og velt hlassinu, er það tekur að riða til falls. En Jóhannes var ekki aðeins maður gæddur holdi og' blóði. 1 honum bjó jafnframt andi, andi Guðs. Þess- vegna trúði hann ekki minnstu vitund á þá uppgötvun, að sannleikurinn sé sama sem snjallyrði. Dagurinn rann uþjp, er hann fann, að nú var stundin komin. Nú er sannleikurinn kominn til mín og krefst fararbeina. Visasl hefir hjarta hans slegið hart og títt bak við liærða bringuna og tungan loðað við góminn. En inni i hjartanu, sem barðist, liefir búið djúpur frið- ur: Nú lala ég eins og ég á að tala, nú vinn ég köllun- arverk mitt. Nú starfa ég eins og manni sæmir. —- Já, í hjarta hans, sem ófriðurinn lukti um alla vega, bjó djúpur friður. Hánn veitti tungu lians þrótt til að losna við góminn og mæla orðin fáu, sem nægðu til: „Þú mátt ekki eiga hana“. „Friður sé með þér“ er kveðja kirkjunnar. í sálmabók- inni syngjum við um Guðs frið, sem er æðri en engla- vörður, og á hverjum sunnudegi lyftum við ])restar liönd- um yfir altarinu út yfir söfnuðinn (allt til áherzlu, svo sem auðið er): Drottinn upplyfti sínu augliti yfir þig og gefi þér frið. Það er ofboðsleg villa að ætla, að þessi „friður“ sé sama sem: Far vel, lif heill, sof í ró, góða líðan, og Guð sjái fyrir því, að þú eigir alltaf skóhlífar í snjókrap. Nei, Guðs friður merkir það, að jafnvægi er

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.