Kirkjuritið - 01.06.1945, Page 11
Kirkjuritið.
Hin niikla nýsköpun.
201
Kristindóniurinn eiini grefur fyrir rætur meinsins. Hann
finnur þær inni í sálum mannanna. MannlífiÖ, mann-
eðliö sjálft verður aö umskapa. Allt Nýja testamentið er
samhljóða vitnisburður um það. Ef einliver er í samfé-
lagi við Krist Jesúm, hann er nýr maður. Yður her að
endurfæðast, annars sjáið þér ekki Guðs ríki, fæðasl að
ofan, fæðast af Guði. Þér verðið að taka sinnaskipti,
skipta um sinni og sál.
Þetta er róltæk stefna og liún leiðir til árangurs. Með
þessu fæðist hin nýja jörð af hinum nýja himni. Mann-
lifsmeinin hverfa. Kristindómurinn bendir á himininn
til þess að endurbæta jörðina. Sannur kristindómur hef-
ir aldrei viðurkennt trúna án mannkærleikans, aldrei
viðurkennt nýjan himin án nýrrar jarðar. Æðsta boðorð-
ið er: Elska skaltu Guð þinn — og náunga þinn. Og enn
sterkar er þó að orði kveðið i 1. Jóhannesarbréfi: Sá,
sem ekki elskar bróður sinn getur ekki elskað Guð.
Leiðin til Guðs er um hlaðið hjá náunganum. Guð segir
ekki aðeins: Viltu gera svo vel að koma við hjá bróður
þínum um leið og þú kemur til mín. Nei, bann segir:
Þú skalt ekki reyna að koma til min nema frá náunga
þinum, bróður þínum.
Engin þjóðmálastefna er róttækari en kristindómur-
inn. Svona er kristin kirkja, sem stundum er kölluð
íhaldssöm. Nei, alll er kák við ldiðina á þessu. Menn eru
að reyna að koma sér upp einhverskonar heimagerðri
lifsgæfu, og þiað væri góðra gjalda vert, ef ekki væri
með því verið að ginna menn burt frá hinni sönnu lífs-
gæfu, sem Guð sjálfur hefir fært oss hingað á þessa jörð.
Hann hefir sýnt oss hinn nýja himin bvelfast yfir nýrri
jörð. Þaðan verður nýsköpunin að koma, að ólöstuðum
öllum voru góðu nýbyggingarráðum bér á jörðunni.
Það á að auka öll jarðarinnar gæði, beita hugvitinu til
nýrra og aukinna framfara, jafna kjör mannanna og'
bæta, tryggja gegn hættum og gera jörðina að sem bezt-
mn bústað. En þetta verður ekki gert nema með því að